Vaktir Orlofssjóðs um páska

Fréttir|31. mars 2026
Nicolas J Leclercq Rduvuefpv9y Unsplash

Hægt verður að koma skilaboðum til Orlofssjóðs í gegnum tölvupóst um páskahelgina.

Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um páska eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á.

Skrifstofa KÍ verður lokuð yfir páskana. Þurfi félagsmaður nauðsynlega að ná í starfsfólk Orlofssjóðs eða koma skilaboðum til sjóðsins þá getur viðkomandi sent tölvupóst á netfangið orlof@ki.is.

Starfsfólk Orlofssjóðs mun lesa tölvupóst sem hér segir:

  • Fimmtudaginn 2. apríl – milli kl. 11:00-12:00
  • Laugardaginn 4. apríl – milli kl. 11:00-12:00
  • Mánudaginn 6. apríl – milli kl. 11:00-12:00

Gleðilega páska!