Vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála

Fréttir|17. apríl 2026

Stjórn KÍ ætlar að rýna í úrskurðinn og fá ráðgjöf um giftusamt endurbótaferli.

„Nú hefur verið birtur úrskurður kærunefndar jafnréttismála sem mat Kennarasamband Íslands hafa brotið jafnréttislög á starfsmanni á skrifstofu sambandsins.

Þessari niðurstöðu unum við að sjálfsögðu.

Okkur þykir afar miður að sú hafi verið raunin en á sama tíma fögnum við því að eiga embætti kærunefndar jafnréttismála sem getur stigið inn í slíkan ágreining eins og nú er gert. Kennarasamband Íslands er auðvitað ekki undanþegið regluverki jafnréttismála. Ég ítreka leiða stjórnar KÍ vegna umrædds brots gegn starfsmanni okkar.

Við höfum lokið málinu gagnvart starfsmanninum og erum að taka næstu skref til þess að læra af málinu og koma í veg fyrir að slíkt hendi aftur. Stjórn KÍ mun á næstu dögum og vikum rýna betur í úrskurðinn og fá ráðgjöf um giftusamt endurbótaferli. Á þeirri leið mun félagsfólki gefast kostur á að taka þátt og þannig vera með í því ferli á vettvangi sinna aðildarfélaga og hjá KÍ.

Fyrir hönd stjórnar KÍ skora ég á félagsfólk að kynna okkur niðurstöðuna og þær áherslur og ábyrgð sem hún leggur okkur til.

Við eigum að vera fyrirmynd á sviði jafnréttismála. Við í stjórn KÍ ætlum okkur að verða það og munum í því, eins og í öllu öðru, leita til félagsfólks til árangur náist.“

F.h. stjórnar KÍ

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ

 

Úrskurður kærunefndar