Vel heppnaður starfsþróunardagur
Um 1.700 starfsmenn framhaldsskóla tóku þátt í fjölbreyttri og áhugaverðri dagskrá árlegs starfsþróunarstarfsdags sem fór fram víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Alls tóku 26 framhaldsskólar þátt í Starfsþróunardegi framhaldsskólastarfsmanna sem fór fram víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Samantekið voru þátttökuskólarnir 14 af höfuðborgarsvæðinu og tólf af landsbyggðinni.
Talið er að allt að 1.700 starfsmenn framhaldsskóla hafi tekið þátt í deginum.
Starfsþróunardagurinn hófst með morgunverði í hverjum skóla og síðan var þátttakendum boðið að skoða viðkomandi skóla. Sameiginleg dagskrá hófst klukkan 10 og var streymt á netinu. Að henni lokinni voru fluttir fyrirlestrar í hverjum og einum skóla.
Fleiri fyrirlestrar, vinnustofur, samtöl þátttakenda og ýmis annað áhugavert fyllti dagskrána að loknum hádegisverði.
Fyrirkomulagið var þannig að greinum og störfum var skipt milli skóla; til dæmis komu íslenskukennarar saman í Menntaskólanum í Reykjavík, félagsgreinakennarar í Flensborg og umsjónarmenn fasteigna í Menntaskólanum við Sund.
Dagurinn þótti að öllu leyti vel heppnaður en honum lýkur með Uppskeruhátíð í kvöld þar sem stiginn verður dans.
Í Borgarholtsskóla komu saman kennarar í málmiðngreinum, vélstjórn, blikksmíði og matvælagreinum og framleiðslu. Á myndinni eru þeir Benedikt Jón Þórðarson, kennari við Tækniskólann, og Ellert Danelíusson, kennari við Borgarholtsskóla, að fjalla um áhættugreiningar og áhættumat.