Verkfallsboðun samþykkt í Tækniskólanum og Menntaskóla Borgarfjarðar
Fréttir|8. mars 2014
Mikill meirihluti félagsmanna KÍ í Tækniskólanum og Menntaskóla Borgarfjarðar hefur samþykkt boðun verkfalls 17. mars næstkomandi hafi nýir kjarasamningar ekki náðst. Atkvæðagreiðsla fór fram í skólunum tveimur dagana 6. til 7. mars 2014 og talning atkvæða fór fram í dag.
Niðurstaðan er sem hér segir:
Tækniskólinn
- Á kjörskrá voru 167.
- Atkvæði greiddu 141 eða 84,4%.
- Já sögðu 116 eða 82,3%.
- Nei sögðu 23 eða 16,3%.
- Auðir seðlar og ógildir voru 2 eða 1,4%.
Menntaskóli Borgarfjarðar
- Á kjörskrá voru 13.
- Atkvæði greiddu 12 eða 92,3%.
- Já sögðu 9 eða 75%.
- Nei sögðu 3 eða 25%.
- Auðir seðlar og ógildir voru 0.