Verkfallsmiðstöðvar opnaðar

Fréttir|18. mars 2014

Framhaldsskólakennarar hafa opnað verkfallsmiðstöðvar víða um land í dag en á höfuðborgarsvæðinu er miðstöðin til húsa í Framheimilinu í Safamýri. Þangað fjölmenntu kennara í dag til að fá upplýsingar en einnig til að ræða sín á milli stöðu mála. Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara kom við á verkfallsmiðstöðinni um klukkan tvö til að gera félagsmönnum sínum grein fyrir gangi kjaraviðræðna. Í tölu hennar kom fram að staðan væri flókin og enn bæri nokkuð í milli.

Í verkfallsmiðstöðinni í Reykjavík munu kennarafélög skiptast á að bera fram veitingar frá degi til dags, en í dag voru þær í boði Kennarafélags MR.

Kennarar á Akureyri og Selfossi hafa einnig opnað verkfallsmiðstöðvar. Annarsstaðar hafa kennarar einnig komið saman þó ekki sé til staðar formleg verkfallsmiðstöð. Það á t.d. við um kennara á Ísafirði sem hittust í dag á kaffihúsi. 

Myndirnar hér að neðan voru teknar í verkfallsmiðstöðinni í Reykjavík um klukkan tvö í dag.