Viðbragðið skiptir mestu máli í alvarlegum skólatilvikum

Fréttir|4. febrúar 2026

Kennarasambandið, í samstarfi við ríkislögreglustjóra, blæs til málþings um forvarnir, öryggi, áfallaþol og viðbrögð við alvarlegum atvikum í skólakerfinu.

Málþingið fer fram þriðjudaginn 14. apríl, á milli klukkan 13 og 16, á Hilton Reykjavík Nordica. Hverjir velkomnir, gjaldfrjálst, skráning hér. Skráningarfrestur.

Kennarasamband Íslands hefur látið sig öryggi starfsfólks og nemenda miklu varða. Síðustu ár hefur borið meira á ýmsum atvikum sem óneitanlega hafa kallað eftir frekari forvörnum og aðgerðum innan skólanna. 

Á árunum 2020 til 2021 voru gerðar viðbragðsáætlanir fyrir framhaldsskóla landsins. Þar var meðal annars fjallað um viðbrögð við ógnunum, náttúruvá, smitsjúkdómum og efnaslysum. Skólameistarafélag Íslands og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stóðu saman að þessari vinnu.

Nú hefur Kennarasamband Íslands hug á því að fylgja þessari vinnu eftir og þá með öll skólastigin í huga; leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistarskóla.

Því boðar Kennarasambandið, í samvinnu við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, til málþings, sem haldið verður í tengslum við 9. þing KÍ sem fer fram um miðjan apríl. Fjallað verður um viðbrögð við alvarlegum atvikum, sem geta verið af ýmsum toga eins og getið er hér að ofan. Viðbragðið er það sem skiptir mestu máli.

Upplegg málþingsins er að stjórnendur, kennarar og ráðgjafar fái hagnýtar leiðbeiningar um hvernig við getum öll verið á vaktinni og vitum hvað gera skal ef alvarleg atvik koma upp. Flutt verða erindi þar sem tekið verður á helstu atriðum og jafnframt verður boðið upp á pallborðsumræður. Í lok málþings verða umræður á borðum sem KÍ stýrir og sér um úrvinnslu.

Markmiðið er að í kjölfar málþingsins verði skipulagðar æfingar þar sem farið er í gegnum ýmsar sviðsmyndir. Með vitundarvakningu og skipulögðum æfingum er markmiðið að efla áfallaþol skólakerfisins til muna.