Vika móðurmálsins
Fréttir|19. febrúar 2014
Í tilefni af alþjóðadegi móðurmálsins verður efnt til nokkurra viðburða dagana 21.–28. febrúar nk. í því skyni að minna á réttinn til móðurmálsins og vekja leika og lærða til vitundar um mikilvægi móðurmáls fyrir einstaklinga og menningu þjóða. Að dagskránni standa Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Unesco-nefndin á Íslandi í samvinnu við fjölmörg samtök, stofnanir og aðra sem láta sig málið varða.
Fólk er hvatt til að taka þátt í viðburðum í viku móðurmálsins. Sérstaklega er starfsfólk í skólum landsins hvatt til að vekja athygli nemenda á þessu mikilvæga málefni og stuðla að jákvæðri umræðu um ólík móðurmál í skólum. Hægt er að kynna sér dagskrána hér.