Virðismatsvegferðin heldur áfram

Fréttir|4. mars 2026
Pistill

„Virðismatsvegferðin er sameiginlegt verkefni okkar allra, leidd af faglegri stjórn samningsaðila. Hún snýst um að móta skýran og faglegan grunn að framtíð kjarasamninga og tryggja að kennarastarfið sé metið að verðleikum – til lengri tíma," skrifar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.

Kæru félagar!

Í liðinni viku fór fram vinnustofa um virðismatsvegferð aðildarfélaga KÍ. Var þar saman komin fagleg stjórn verkefnisins um virðismat og þar voru skref tekin í áframhaldandi vinnu sem hófst með undirritun síðustu kjarasamninga. Í faglegri stjórn sitja fulltrúar allra aðildarfélaga KÍ og opinberra launagreiðenda.

Til að rifja upp var við undirritun síðasta kjarasamnings ákveðið að horfa til nýrrar nálgunar, horfa til þess hvort hægt sé að tengja launaþróun félagsfólks KÍ við heildstæða hugmyndafræði um virðismat kennarastarfsins. Launahækkanir samninganna voru því ekki aðeins niðurstaða hefðbundinna hækkana heldur hluti af stærri sýn: að byggja upp sanngjarnt, gagnsætt og faglegt kerfi sem metur raunverulegt innihald og ábyrgð starfa okkar. Hækkun launa í febrúar var því fyrsta skrefið í jöfnunaraðgerð í anda umræðu um að jafna laun sérfræðinga í fræðslugeiranum (félagsfólk KÍ) við sambærileg störf, byggð á því að í virðismatinu finnist ný nálgun á kjarasamningagerð til framtíðar. 

Frá undirritun samninganna hefur vinna við virðismatið verið í fullum gangi, leidd af styrkri stjórn ríkissáttasemjara með starfsfólk Jafnlaunastofu í lykilhlutverki. Á vinnustofunni í liðinni viku var fjallað um grundvöll umbreytinga, mikilvægi samtals og samvinnu samningsaðila og hvernig tryggja megi að kerfið sem mótað verður muni endurspegla þá fagmennsku og þá víðtæku ábyrgð sem felst í kennarastarfinu. Jafnframt var farið yfir þróun virðismatskerfa og rýnt í þær forsendur sem liggja að baki slíku mati. Allt sem miðar að því að komast stöðugt lengra í vinnu við slíkt kerfi á vettvangi KÍ.

Sérstök áhersla var lögð á á verðmætamat starfa og mikilvægi þess að byggja kerfið á traustum og málefnalegum grunni. Slík umræða er lykilatriði í því að tryggja jafnræði og réttlæti í mati á störfum sem gegna lykilhlutverki í samfélaginu.

Launaskrið og samningsbundnar launahækkanir

Seðlabanki Íslands kynnti á fundi Þjóðhagsráðs, mánudaginn 2. mars síðastliðinn, sýn sína á launatölfræði og þróun launa. Kynningin hefur vakið nokkra athygli. Til dæmis er að finna frétt um kynninguna í Viðskiptablaðinu frá 3. mars.

Fyrirsögn fréttarinnar er:

Launahækkanir kennara sprengdu skalann

og undirfyrirsögin er:

Seðlabankinn segir launaskrið hafa verið tvö- til fimmfalt meira á Íslandi en í Svíþjóð og á evrusvæðinu frá árinu 2019.

Af þessu tilefni er viðeigandi að árétta tilurð þeirrar launahækkunar sem félagsfólk KÍ fékk í febrúar 2025 og var umfram umsamdar launahækkanir sem flestir aðrir hópar höfðu samið um í síðustu kjarasamningum. Hækkunin kom til á grundvelli þeirrar virðismatsvegferðar sem lýst er hér að framan. Um var að ræða innáborgun vegna vegferðarinnar sem meðal annars tók mið af bráðabirgðamati Jafnlaunastofu á störfum kennara en það benti sterklega til þess að störf þeirra væru vanmetin.

Viðskiptablaðið fullyrðir að framangreind launahækkun kennara hafi „sprengt skalann“. Ef „skalinn“ eru umsamdar launahækkanir tiltekinna hópa sem sömdu á undan kennurum á árinu 2024 þá er það rétt að kennarar sömdu að þessu sinni við ríki og sveitarfélög (og síðar við SA vegna einkarekinna leikskóla) um hækkanir umfram „skalann“.

Á hitt ber að líta að svokallað „launaskrið“ nær ekki nema að afar takmörkuðu leyti til kennara. Launahækkanir umfram umsamdar hækkanir eiga sér fyrst og fremst stað á almennum markaði. Það kann að vera rétt sem Viðskiptablaðið hefur eftir Seðlabankanum að „launaskrið hafa verið tvö- til fimmfalt meira á Íslandi en í Svíþjóð og á evrusvæðinu frá árinu 2019.“ en hlutur kennarastéttarinnar í því launaskriði getur ekki verið mikill. Þrátt fyrir að launahækkun stéttarinnar hafi sprengt „skalann“ á síðasta ári draga kennarar ekki vagninn þegar kemur að launabreytingum frá árinu 2019.

Á myndinni hér fyrir neðan, sem byggir á gögnum frá Kjaratölfræðinefnd, má sjá breytingar á grunntímakaupi nokkurra hópa frá árinu 2019.

Picture1

Spurningalistar  í gangi – lykilþáttur í vinnunni

Nú stendur yfir mikilvægur áfangi í ferlinu. Spurningalistar hafa verið lagðir fyrir valinn hóp kennara í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum. Markmið þeirra er að safna nákvæmum upplýsingum um raunverulegt innihald starfa, ábyrgð, hæfniskröfur, álag og fjölbreytileika verkefna.

Við viljum þakka sérstaklega þeim félögum sem nú gefa sér tíma til að svara þessum listum. Framlag ykkar er ómetanlegt. Án ykkar innsýnar og reynslu verður ekki hægt að byggja upp það trausta og réttláta virðismatskerfi sem stefnt er að. Þátttakan skiptir máli – hún er hornsteinn þeirrar vinnu sem fram undan er.

Kynningar og umræða á vettvangi félagsfólks

Á næstu vikum og mánuðum verður virðismatsvegferðin kynnt á aðalfundum aðildarfélaga KÍ. Þar gefst félagsfólki kostur á að fá nánari upplýsingar, spyrja spurninga og taka þátt í umræðu um næstu skref. Þá verður virðismatið einnig til umfjöllunar á þingi KÍ þar sem sameiginleg stefnumótun fer fram.

Virðismatsvegferðin er sameiginlegt verkefni okkar allra, leidd af faglegri stjórn samningsaðila. Hún snýst um að móta skýran og faglegan grunn að framtíð kjarasamninga og tryggja að kennarastarfið sé metið að verðleikum – til lengri tíma. Á þeirri leið verður lagt upp með að kalla raddir félagsfólks KÍ að borðinu til að rýna vel í það hversu vel hugmyndafræði virðismats getur verið farsæl í vinnuumhverfi allra skólagerða og um leið eflt sameiginlega sýn okkar og opinberra launagreiðenda.

Þar stöndum við frammi fyrir tækifæri sem byggir á vandaðri vinnu, virkri þátttöku og opnu samtali. Þannig leggjum við grunn að kerfi sem styrkir stöðu kennara, ráðgjafa og stjórnenda og styður við öflugt og sjálfbært skólakerfi.

Sú vegferð er á fullri ferð og heldur áfram, með upprunaleg markmið í huga um sameiginlega nýja sýn og nálgun launafólki, launagreiðendum og skólastarfi til heilla.