Vonarglæta þótt enn þurfi að klífa brekkur

Fréttir|27. mars 2014

Björninn er langt frá því unninn þótt rofað hafi til í samningaviðræðum FF og FS við ríkið síðasta sólarhringinn. Þetta sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður samninganefndar FF, á fundi í Verkfallsmiðstöðinni í Framheimilinu klukkan tvö í dag.

Aðalheiður sagði daginn í gær og síðustu daga hafa verið erfiða. Samninganefnd ríkisins hefði verið gert ljóst í gær að ekki yrði sest niður fyrr en jákvæðari svör um launatölur bærust. „Það fór að rofa til seinnipartinn í gær og boðaði sáttasemjari til fundar klukkan sex. Þar birtist samninganefnd ríkisins með jákvæðari svör en áður höfðu komið fram og í trausti þessa ákváðu báðir aðilar að setja aftur yfir málin í fullri alvöru og var það gert í morgun.“

Aðalheiður minnti fundarmenn á að þótt vonarglæta væri í viðræðunum ætti enn eftir að klífa margar brekkur. „Við förum ekki út úr þessum kjarasamningum nema vera búin að jafna launin við samanburðarhópana og við erum ekki komin á leiðarenda í því stóra máli,“ sagði Aðalheiður.

Að sögn Aðalheiðar er ekki hægt að fullyrða neitt um hvenær verkfallinu kunni að ljúka, bjartsýn spá væri seint í næstu viku. Aðalheiður þakkaði fundarmönnum og félögum um allt land stuðninginn undanfarið. „Það er ómetanlegt fyrir okkur samningafólkið að hafa svo fjölmennan og kraftmikinn hóp á bak við okkur.“

Ólafur H. Sigurjónsson, formaður FS, ávarpaði einnig fundinn. Hann sagði hart að hugsa til þess að í annarri viku verkfalls væru samningsaðilar enn að fást við tæknilegar úrlausnir samningsins. Það væri furðulegt að ríkisvaldið áttaði sig ekki því mikla tjóni sem verkfallið ylli nemendum. „Þeir tala ekki við okkur heilu dagana. Þannig hafa dagarnir liðið og á meðan standa skólarnir tómir sem algjörlega óþolandi.“

 

Ræður Aðalheiðar og Ólafs má sjá hér: