Yfirlýsing frá lögfræðingi KÍ
„Það tekur út yfir allan þjófabálk að formaður samninganefndar ríkisins geri athugasemd við að formaður Félags Framhaldsskólakennara upplýsi félagsmenn og almenning um stöðu kjaraviðræðna.“ Á þessum orðum hefst yfirlýsing lögmanns Kennarasambands Íslands sem send var fjölmiðlum í dag.
Í yfirlýsingunni segir jafnframt: „Ekkert hefur komið fram frá samninganefnd ríkisins sem gæti höggvið á þann hnút sem deilan er komin í. Að óbreyttu stefnir í hörð átök og jafnvel verkfall. Um þá stöðu verða félagsmenn og almenningur að vera meðvitaðir.
Formanni FF var fullkomlega heimilt að tjá sig með þessum hætti lögum samkvæmt, enda einungis að greina frá stöðu og gangi viðræðna með almennum hætti. Lagagreinin sem formaður samninganefndar ríkisins er að vitna til fjallar fyrst og fremst um þá aðstöðu sem upp kemur þegar deilt er um túlkun kjarasamninga. Samkvæmt lagagreininni á ekki að vera hægt að leiða vitni um það sem fram kom í kjaraviðræðum, en litið er svo á að kjarasamningstextinn sjálfur eigi að ráða túlkun en ekki vætti þeirra sem gerðu samninginn. Eins á deiluaðili að geta treyst því að einstakar tillögur sem hann leggur fram til lausnar deilu verði ekki síðar settar fram í öðru samhengi eftir atvikum til að unnt sé að túlka þær honum í óhag.
Þetta er efni og tilgangur lagagreinarinnar en ekki hitt að aðilar kjaradeilu geti ekki greint frá gangi viðræðna."
Erna Guðmundsdóttir
Lögfræðingur Kennarasambands Íslands