Lög Kennarasambands Íslands

Lög KÍ voru síðast uppfærð og samþykkt á 9. Þingi KÍ, sem fór fram í apríl 2026.

Lög Kenn­ara­sam­bands­ins

Hlaða niður eða prenta lög og reglur KÍ

Lög Kennarasambands Íslands

I. kafli

NAFN OG HLUTVERK

NAFN

1. gr

Nafn félagsins er Kennarasamband Íslands, skammstafað KÍ. Heimili og varnarþing er í Reykjavík. 

Sambandssvæðið tekur til alls landsins og innan þess eru eftirtalin aðildarfélög: 

  • Félag framhaldsskólakennara, skammstafað FF 
  • Félag grunnskólakennara, skammstafað FG 
  • Félag kennara á eftirlaunum, skammstafað FKE 
  • Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum skammstafað FT 
  • Félag leikskólakennara, skammstafað FL 
  • Félag stjórnenda í framhaldsskólum, skammstafað FS 
  • Félag stjórnenda leikskóla, skammstafað FSL 
  • Skólastjórafélag Íslands, skammstafað SÍ 

 

HLUTVERK 

2. gr. 

Hlutverk KÍ er að: 

  • Gæta hagsmuna og réttinda félagsfólks, 
  • fara með samningsrétt um kaup og kjör félagsfólks, 
  • stuðla að öryggi félagsfólks og góðum aðbúnaði þess á vinnustað,  
  • auka samstarf kennara og efla fag- og stéttarvitund, 
  • vinna að eflingu kennaramenntunar og starfsþróunar félagsfólks, 
  • vinna að því að efla skólastarf og stuðla að framförum í uppeldis- og skólamálum, 
  • hafa samvinnu við önnur samtök kennara, 
  • hafa samvinnu við samtök annars launafólks, 
  • hafa samvinnu við stofnanir og hagsmunasamtök sem vinna að skólamálum og við samtök kennaranema. 

 

II KAFLI

FÉLAGSAÐILD, ÚRSÖGN OG KJÖRGENGI 

RÉTTUR TIL FÉLAGSAÐILDAR 

3. gr

Rétt til aðildar að KÍ eiga öll sem starfa við kennslu, stjórnun eða ráðgjöf í skólum, vinna við stofnanir og fyrirtæki sem sinna eða tengjast kennslu og fræðslumálum, sinna tengdum störfum í sinni faggrein að uppfylltu eftirtöldu skilyrði: 

KÍ ákvarði launakjör eða semji fyrir viðkomandi skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda. 

Félagsaðild kemur fram í ráðningarsamningi og/eða með skilum félagsgjalda til KÍ. Stjórn KÍ skal í samráði við viðkomandi starfsmann sambandsins ákveða félagsaðild að aðildarfélagi. 

Enn fremur eiga rétt til aðildar að KÍ: 

  1. Kennarar á eftirlaunum skv. ákvæðum 5. gr. laga þessara, 
  2. kennarar á örorkulífeyri skv. reglum sem stjórn KÍ setur, 
  3. kennarar á atvinnuleysisbótum sem greiða félagsgjald, 
  4. kennarar í fæðingarorlofi sem greiða félagsgjald, 
  5. starfsmenn Kennarasambands Íslands sem greiða félagsgjald. 

 

HEIMILD TIL FÉLAGSAÐILDAR 

4. gr.

Stjórn KÍ er heimilt að veita félagsfólki í launalausu leyfi félagsaðild enda stundi það ekki aðra launaða vinnu eða sjálfstæðan atvinnurekstur. Stjórn KÍ skal setja nánari reglur um félagsaðild samkvæmt þessari grein. 

Þeir aðilar sem uppfylla aðildarskilyrði að KÍ en uppfylla ekki skilyrði til aðildar að ákveðnu aðildarfélagi innan KÍ geta engu að síður sótt um að gerast félagar með beinni aðild að KÍ ef þeir svo kjósa og vinnuveitandi þeirra samþykkir. Þeir njóta allra félagslegra réttinda nema seturéttar á fundum sem takmarkast við ákvörðun stjórnar KÍ og/eða viðkomandi aðildarfélags. Þeir njóta þjónustu starfsfólks þess félags sem gerir kjarasamning þann er þeir taka laun eftir sem og þjónustu annars starfsfólks KÍ og lögmanna. Um aðild að vísinda-/endurmenntunarsjóði fer eftir kjarasamningsaðild. 

 

ÚRSÖGN 

5. gr.

Félagsaðild fellur niður ef félagi hættir í því starfi sem veitti honum aðild eða greiðslur félagsgjalda falla niður. Þeir sem gerast félagar í FKE halda þó félagsaðild samkvæmt ákvæðum laga þessara. 

Félagi getur ekki sagt sig úr Kennarasambandi Íslands eftir að ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin og þar til henni hefur verið formlega aflýst. Félagi sem segir sig úr félaginu á ekki tilkall til eigna þess. 

 

FÉLAGSGJALD OG REIKNINGSÁR 

6. gr.

Félagsfólk greiðir félagsgjald til Kennarasambands Íslands eftir ákvörðun þings. Launagreiðandi skal innheimta félagsgjald mánaðarlega. 

Félagsfólk í launalausu leyfi greiðir félagsgjald samkvæmt ákvörðun þings. Félagsgjald þetta skiptist milli félagssjóðs og annarra sjóða í sömu hlutföllum og þau gjöld sem KÍ móttekur vegna annars félagsfólks. Hver einstaklingur er sjálfur ábyrgur fyrir greiðslu félagsgjalds í þessu tilfelli. 

Lífeyrisþegar greiða ekki félagsgjald nema þeir haldi áfram störfum á föstum mánaðarlaunum. 

Reikningsár sambandsins er almanaksárið. 

 

KJÖRGENGI OG TRÚNAÐARSTÖRF

7. gr.

Það félagsfólk sem greiðir félagsgjöld til Kennarasambands Íslands telst virkt félagsfólk.  

Einungis virkt félagsfólk getur boðið sig fram, verið skipað og tekið að sér trúnaðarstörf fyrir Kennarasamband Íslands, aðildarfélög þess, sjóði, nefndir og ráð að undanskildum trúnaðarstörfum fyrir FKE. 

Verði lengra en þriggja mánaða rof á greiðslu félagsgjalds félaga til Kennarasambands Íslands leiðir það sjálfkrafa til þess að félaginn er leystur frá öllum trúnaðarstörfum fyrir Kennarasamband Íslands, aðildarfélög þess, sjóði, nefndir og ráð að undanskildum trúnaðarstörfum fyrir FKE. Stjórn KÍ er þó heimilt að veita tímabundna undanþágu að hámarki 6 mánuði til áframhaldandi trúnaðarstarfa þrátt fyrir að félagi sé ekki virkur félagi.  

 Ráðið starfsfólk KÍ getur ekki boðið sig fram til trúnaðarstarfa innan KÍ eða aðildarfélaga þess. Þó getur stjórn KÍ eða aðildarfélaga þess falið ráðnu starfsfólki að sinna afmörkuðum trúnaðarstörfum, að undanskildum trúnaðarstörfum sem almennt er kjörið í, svo sem stjórnir, samninganefndir og skólamálanefndir aðildarfélaga.  

 

III. KAFLI 

SKIPULAG 

FÉLÖG 

8. gr

Aðild að KÍ eiga þau félög sem talin eru upp í 1. gr. 

Heimilt er að stofna ný aðildarfélög innan KÍ ef aðrir hópar óska eftir aðild að sambandinu. Samþykkt þings þarf fyrir aðild nýs félags. 

 

HLUTVERK AÐILDARFÉLAGA 

9. gr

Hlutverk aðildarfélaga er að: 

  1. Fara með kjaraleg og fagleg málefni viðkomandi félagsfólks sem starfa við kennslu, stjórnun eða ráðgjöf í skólum eða vinna við stofnanir og fyrirtæki sem tengjast kennslu- og fræðslumálum, sbr. 3. gr., 
  2. gera kjarasamninga fyrir félagsfólk sitt, 
  3. halda fundi og námskeið fyrir trúnaðarmenn, 
  4. skipa í stjórnir sjóða og nefndir KÍ í samræmi við lög þessi, 
  5. sjá um kjör fulltrúa á þing KÍ, 
  6. efla faglega umræðu meðal félagsfólks síns. 

SKIPULAG AÐILDARFÉLAGA 

10. gr.

Hvert aðildarfélag setur sér lög og kýs stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd. Stjórnir aðildarfélaga skulu skipaðar allt að sjö manns, með formanni. Formaður og stjórn, aðildarfélaga skulu kosnar í atkvæðagreiðslum meðal félagsfólks viðkomandi aðildarfélags og skulu kosningarnar vera rafrænar og standa yfir í a.m.k. 72 klst. og vera lokið fyrir aðalfund viðkomandi félags. Ef aðeins einn býður sig fram til embættis skoðast viðkomandi sjálfkjörinn. Að öðru leyti skulu kosningar fara fram í samræmi við lög hvers félags og heimilt er að hafa þær rafrænar. Aðildarfélög skulu senda stjórn KÍ afrit af lögum sínum til samþykktar innan fjögurra vikna frá aðalfundi. Stjórn KÍ skal ganga úr skugga um að lög félags brjóti ekki í bága við lög KÍ. Stangist lög aðildarfélags á við lög KÍ gilda lög KÍ. Breytingar á lögum aðildarfélaga öðlast ekki gildi nema með samþykki stjórnar KÍ. 

Í lögum aðildarfélaga KÍ skal kveðið á um skipulag deilda og svæðafélaga. 

Formenn aðildarfélaga KÍ hafa yfirumsjón með rekstri þeirra og bera ábyrgð á öllum málaflokkum, þar með talið fræðslu- og endurmenntunarsjóðum og starfi í skóla- og kjaramálum. Þeir fara hver um sig með umboð sambandsins gagnvart undirbúningi, gerð og undirritun viðræðuáætlana, kjarasamninga og um önnur mál er tengjast samningasviðinu.  

 

SAMNINGANEFNDIR AÐILDARFÉLAGA 

11.gr.

Stjórn aðildarfélags er jafnframt samninganefnd og formaður aðildarfélags er formaður samninganefndar. Hvert aðildarfélag hefur val um að kjósa allt að fimm fulltrúa sem ásamt stjórn félagsins mynda samninganefnd. Kosning skal fara fram í samræmi við lög hvers félags. 

  1. Samninganefnd hvers aðildarfélags fer með gerð kjarasamninga fyrir félagsfólk sitt, sbr. lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Samninganefndin skiptir með sér verkum. 

Hlutverk samninganefnda er: 

  1. Að ganga frá markmiðum og áherslum í samningsgerð og endanlegri kröfugerð, 
  2. að annast gerð kjarasamninga, 
  3. að taka ákvörðun um hvort efna skuli til atkvæðagreiðslu um verkfall, 
  4. að taka ákvörðun um hvort undirrita eigi kjarasamning með fyrirvara um samþykki félagsfólks og hvort fresta skuli verkfalli. 

Formaður aðildarfélags í umboði KÍ ber ábyrgð á undirritun kjarasamninga fyrir sitt félagsfólk og gerð og undirritun viðræðuáætlana vegna endurnýjunar þeirra sbr. einnig 10. gr. í lögum KÍ. 

Formaður eða varaformaður KÍ starfar með samninganefnd aðildarfélags ef stjórn viðkomandi félags óskar. 

Allur kostnaður vegna samninganefnda aðildarfélaga greiðist af viðkomandi félagi. 

 

SKÓLAMÁLANEFNDIR AÐILDARFÉLAGA 

12. gr.

Á vegum aðildarfélaga starfa allt að sjö manna skólamálanefndir sem sinna faglegum málefnum fyrir félagsfólk þeirra. Aðildarfélögum er heimilt að fela stjórn félagsins að fara með þennan málaflokk og skulu þá gera einn stjórnarmann ábyrgan fyrir honum. 

Hlutverk skólamálanefnda er: 

  1. Að fjalla um fagleg málefni og skólamál í samráði við stjórn og skólamálaráð KÍ, 
  2. að vinna að eflingu kennaramenntunar og starfsþróunar félagsfólks, 
  3. að annast tengsl við kennslu- og faggreinafélög. 

 Allur kostnaður vegna skólamálanefndar aðildarfélags greiðist af viðkomandi félagi. 

 

AÐALFUNDIR AÐILDARFÉLAGA 

13. gr.

Aðalfundir aðildarfélaga skulu haldnir fjórða hvert ár í tengslum við þing Kennarasambands Íslands. Ekki skulu líða meira en sex mánuðir milli þings KÍ og aðalfundar félags. 

Á reglulegum aðalfundi skulu m.a. tekin fyrir þessi mál: 

  1. Skýrsla fráfarandi stjórnar og reikningar, 
  2. kjöri nýrrar stjórnar lýst, 
  3. kosning í fastanefndir og aðrar trúnaðarstöður félagsins skv. lögum þess eða ákvörðun aðalfundar, 
  4. lagabreytingar, 
  5. önnur mál. 

Stjórnum aðildarfélaga er heimilt að boða til aukaaðalfunda um tiltekin efni. Boða skal til aukaaðalfundar með a.m.k. 4 vikna fyrirvara þar sem tilefni fundarins kemur fram. Fundargögn skulu send út með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara. Aukaaðalfundur fjallar um tiltekin afmörkuð mál og hafa ákvarðanir aukaaðalfunda um slík málefni sama gildi og ákvarðanir reglulegra aðalfunda. 

Skylt er að boða til aukaaðalfundar, svo fljótt sem auðið er, ef þriðjungur félags eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni. 

Kostnaður vegna aðalfunda og aukaaðalfunda aðildarfélaga greiðist af viðkomandi félagi. 

 

ÁRSFUNDIR AÐILDARFÉLAGA 

14. gr.

Þau ár, sem ekki er haldinn aðalfundur, skulu stjórnir aðildarfélaga boða til ársfundar skv. lögum hvers félags. Á ársfundi er m.a. fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram til kynningar. 

Kostnaður vegna ársfunda aðildarfélaga greiðist af viðkomandi félagi. 

 

SAMSTARF MILLI SVÆÐAFÉLAGA/DEILDA Í KÍ OG SÉRSTAKIR STYRKIR 

15. gr.

Þing KÍ skal ákvarða hverju sinni hvort veita skuli sérstöku fjármagni til að styrkja starfsemi/samstarf svæðafélaga/deilda aðildarfélaga innan KÍ. Ákveði þing sérstaka fjárveitingu í þessu skyni geta stjórnir svæðafélaga/deilda sótt um styrk til stjórnar KÍ. Styrkumsókn skulu fylgja reikningar svæðafélags/deildar ásamt umsögn aðildarfélags. Stjórn KÍ skal setja nánari reglur um styrkveitingar samkvæmt þessari grein og skulu reglurnar kynntar fyrir stjórnum svæðafélaga/deilda. 

Styrkir samkvæmt þessari grein skulu einungis veittir til að styrkja félagsstarf/samstarf svæðafélaga/deilda. Óheimilt er að veita fé samkvæmt þessari grein til að styrkja einstaklinga eða til að greiða kostnað af starfsþróun. 

 

TRÚNAÐARMENN 

16. gr.

Stjórn Kennarasambands Íslands hlutast til um að á hverjum vinnustað sé kjörinn trúnaðarmaður þar sem félagsfólk þess starfa, sbr. lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Stjórnir aðildarfélaga skulu halda fundi og námskeið með trúnaðarmönnum svo oft sem þurfa þykir. Stjórn KÍ skipuleggur fræðslu fyrir trúnaðarmenn um mikilvæg réttinda- og hagsmunamál með það að markmiði að auka samstarf aðildarfélaga KÍ. 

Trúnaðarmenn skulu kjörnir til tveggja ára í senn og skal stjórn viðkomandi aðildarfélags og forstöðumanni stofnunar tilkynnt skriflega um kjör hans. Hverfi trúnaðarmaður úr starfi í viðkomandi skóla eða stofnun áður en kjörtímabili hans lýkur skal kjósa trúnaðarmann í hans stað til tveggja ára. 

  

IV kafli

ÞING OG ÁRSFUNDIR KÍ 

UM BOÐUN, TÍÐNI OG VALD ÞINGA 

17. gr.

Þing hefur æðsta vald í málum Kennarasambands Íslands, sbr. þó 36. gr. Halda skal þing KÍ í mars og/eða apríl fjórða hvert ár. 

Á þinginu eiga sæti með atkvæðisrétti stjórn KÍ, varaformenn aðildarfélaga og einn fulltrúi fyrir hverja 50 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu sem umfram kann að vera. Tala fulltrúa miðast við félagatölu 1. desember árið áður en halda skal þing KÍ. Skulu þeir kosnir af aðildarfélögum, skv. reglum þeirra og er kjörtímabil þeirra milli reglulegra þinga.  

Auk þess skal Félag kennara á eftirlaunum og Rökvís, fagfélag nýliða tilnefna þrjá fulltrúa hvort um sig á þingið. 

Formenn Orlofssjóðs KÍ, Sjúkrasjóðs KÍ, Vinnudeilusjóðs KÍ, kjörstjórnar, framboðsnefndar, jafnréttisnefndar, vinnuumhverfisnefndar, siðaráðs og formenn annarra starfandi nefnda á vegum KÍ sem skipaðar eru samkvæmt ákvörðun þings svo og formenn skólamálanefnda aðildarfélaga skulu eiga seturétt á þingi með málfrelsi og tillögurétti. Hið sama gildir um starfsfólk KÍ. 

Stjórn ákveður fundarstað og fundartíma. Þing skal boðað með a.m.k. 10 vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á þingi þurfa að berast stjórn eigi síðar en 6 vikum fyrir þing, sbr. þó ákvæði 37. gr. um lagabreytingar. Þinggögn skulu birt á vef KÍ með þriggja vikna fyrirvara. Félagsfólk á rétt á að sækja þing til áheyrnar. 

Heimilt er stjórn að boða til aukaþings um sérstök mikilvæg málefni. Skal aukaþing boðað með dagskrá með fjögurra vikna fyrirvara. 

Kostnaður vegna þings KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

DAGSKRÁ 

18. gr.

Á dagskrá þings skulu a.m.k. vera eftirtaldir dagskrárliðir: 

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi KÍ. 
  2. Skýrsla stjórnar um fjárreiður KÍ og lagðir fram endurskoðaðir reikningar til afgreiðslu. 
  3. Skýrslur um starfsemi sjóða og starfandi nefnda. 
  4. Tillögur til lagabreytinga, sbr. 37. gr. 
  5. Stefnuskrá KÍ í félags-, skóla- og kjaramálum. 
  6. Fjárhagsáætlun fyrir næsta kjörtímabil. 
  7. Ákvörðun um félagsgjald fyrir næsta kjörtímabil, sbr. 6. gr. 
  8. Lýst kjöri formanns og varaformanns KÍ. 
  9. Önnur mál. 

 

ÁRSFUNDIR 

19. gr.

Þau ár sem ekki er haldið þing KÍ, skal stjórn boða til ársfundar Kennarasambands Íslands. Á ársfundi eiga seturétt stjórn KÍ, stjórnir, skólamála- og samninganefndir aðildarfélaga KÍ, ásamt formönnum nefnda sem starfa samkvæmt lögum KÍ og nefnda sem starfa samkvæmt ákvörðun þings. Þá eiga jafnframt seturétt skoðunarmenn reikninga KÍ og aðrir sem stjórn KÍ ákveður hverju sinni. 

Á ársfundi skal stjórn leggja fram endurskoðaða reikninga KÍ fyrir næstliðið ár til kynningar, skýrslu yfir starfsemi sambandsins og nefnda þess. Á ársfundi skal taka fyrir málefni sem varða innra starf, skólamál, kjaramál og önnur þau mál sem efst eru á baugi að mati stjórnar hverju sinni. 

Kostnaður vegna ársfunda KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

  

V kafli

STJÓRN OG STJÓRNARKJÖR KÍ 

UM STJÓRN 

20. gr. 

Kjörtímabil stjórnar er milli þinga. 

Formaður og varaformaður skulu kosnir í atkvæðagreiðslu meðal virkra félaga KÍ. 

Atkvæðagreiðsla um kjör formanns og varaformanns skal fara fram í janúar og/eða febrúar á þingári, hún skal vera rafræn, standa yfir í 72 klst. og skal henni vera lokið eigi síðar en fjórum vikum fyrir þing. Ef aðeins einn býður sig fram til embættis formanns og/eða varaformanns skoðast viðkomandi sjálfkjörinn. Formaður og varaformaður KÍ geta ekki verið formenn í aðildarfélagi innan sambandsins. 

Auk formanns og varaformanns sitja í stjórn KÍ formenn aðildarfélaga KÍ: Félags framhaldsskólakennara, Félags grunnskólakennara, Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda í framhaldsskólum, Félags stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélags Íslands. 

Formaður aðildarfélags með fleiri félaga en 1000 skal fara með eitt viðbótaratkvæði í stjórn. Formaður aðildarfélags með fleiri félaga en 2500 skal fara með tvö viðbótaratkvæði í stjórn. Formaður aðildarfélags með fleiri félaga en 5000 skal fara með þrjú viðbótaratkvæði í stjórn. Varaformenn aðildarfélaga eru varamenn í stjórn KÍ. 

Falli atkvæði jafnt á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns KÍ úrslitum. 

Allur kostnaður vegna stjórnarfunda KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

HLUTVERK FORMANNS OG VARAFORMANNS

21. gr. 

Formaður KÍ er formaður stjórnar KÍ, og hefur yfirumsjón með rekstri þess. Varaformaður KÍ er staðgengill formanns.  

 

HLUTVERK STJÓRNAR 

22. gr. 

Stjórn KÍ fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Það felur í sér, auk þess sem að neðan er talið, að taka ákvarðanir í stærri málum sem lúta að sjóðum og aðildarfélögum sambandsins. Stjórnin fer með framkvæmdavald í samræmi við stefnuskrá og starfsáætlun. Hún hefur ákvörðunarvald um málefni sambandsins innan marka laga þessara en lýtur þó fyrirmælum þings og ákvörðunum sem teknar eru í atkvæðagreiðslu. Stjórnin gætir þess að lögum félagsins og samþykktum sé framfylgt. 

Stjórn KÍ ber ábyrgð á fjárreiðum og eignum KÍ. Stjórn KÍ skal sjá til þess að fullnægjandi bókhald, sbr. lög um bókhald nr. 145/1994, sé til staðar fyrir alla sjóði og félög innan sambandsins. Jafnframt ber henni að sjá til þess að fullnægjandi innra eftirlit sé til staðar varðandi rekstur og fjármuni félaga og sjóða sambandsins, m.a. til að koma í veg fyrir misfærslur í bókhaldi sem stafa af skekkjum, sviksemi eða öðrum ólögmætum athöfnum. 

Stjórn KÍ setur reglur um launakjör og þóknanir, sbr. 25. gr. 

Stjórn KÍ skipar tvo skoðunarmenn reikninga KÍ sem valdir eru með hlutkesti úr hópi þeirra fulltrúa sem aðildarfélögin tilnefna. 

Stjórn KÍ setur stjórnum, nefndum og ráðum KÍ erindisbréf um störf sín. 

Stjórn KÍ fylgir því eftir að kjarasamningar séu haldnir og að réttindi félagsfólks séu virt í hvívetna. 

Hlutverk stjórnar KÍ í kjaramálum er að: 

  • fjalla um kjara- og réttindamál og álykta um þau eftir þörfum, 
  • móta og túlka kjarastefnu KÍ og styrkja tengsl milli félaganna á kjarasviðinu, m.a. með því að kalla samninganefndir aðildarfélaganna saman eftir þörfum, 
  • fjalla um, kynna og framfylgja stefnu KÍ í kjara- og réttindamálum sem varða alla félagsmenn KÍ eða sem aðildarfélög hafa falið stjórn að fara með fyrir sína hönd, 
  • fylgjast með efnahags- og kjaramálum, afla gagna og upplýsinga og sjá um að þau séu aðgengileg á hverjum tíma, 
  • undirbúa kjaramálaráðstefnu, fræðslufundi eða námskeið um kjara- og samningamál eftir því sem við á hverju sinni.

 

VERKASKIPTING OG STARFSHÆTTIR 

23. gr. 

Stjórn KÍ setur sér verklagsreglur í upphafi kjörtímabilsins og skiptir með sér verkum samkvæmt þeim. Láti formaður eða varaformaður KÍ af embætti á kjörtímabilinu skal í atkvæðagreiðslu kjósa nýja í þeirra stað. 

Stjórn KÍ skal halda fundi svo oft sem þörf krefur. Í forföllum aðalfulltrúa skal boða varafulltrúa. Formaður stýrir stjórnarfundum og annast dagskrá þeirra. Einfaldan meirihluta þarf til að ákvarðanir stjórnarfunda séu lögmætar, sbr. þó næstsíðustu málsgrein 20. gr. Stjórnarfundir eru lögmætir ef 2/3 hlutar stjórnar eru á fundi enda hafi fundurinn verið boðaður í tæka tíð. 

Eftir að kjör nýs formaður og varaformaður KÍ liggur fyrir og þar til viðkomandi taka við embættum hafa þau rétt til setu á stjórnarfundum KÍ með málfrelsi og tillögurétti en án atkvæðisréttar. 

 

FUNDARGERÐIR 

24. gr. 

Ritari er ábyrgur fyrir ritun fundargerða og skulu þær bornar upp til samþykktar eigi síðar en á næsta stjórnarfundi. Dagskrá stjórnarfunda og fundargerðir þeirra að öðru leyti en því sem skráð er í trúnaðarbók skulu birtar á vef KÍ svo fljótt sem auðið er. 

 

LAUN OG ÞÓKNANIR 

25. gr. 

Allar launagreiðslur og þóknanir á vegum KÍ, aðildarfélaga þess og sjóða skulu vera í samræmi við reglur sem stjórn KÍ setur. 

 

EIGNAVARSLA 

26. gr. 

KÍ skal semja við viðurkenndar fjármálastofnanir um vörslu og ávöxtun fjármuna KÍ og eftirtalinna sjóða í eigu þess: Orlofssjóðs KÍ, Sjúkrasjóðs KÍ og Vinnudeilusjóðs KÍ. Miða skal við að fjármunir séu ávaxtaðir á innlánsreikningum, í skuldabréfum eða hlutabréfum samkvæmt nánari fyrirmælum stjórnar KÍ. 

Starfandi skal vera fjárvörsluráð innan KÍ. Hlutverk fjárvörsluráðs er að móta stefnu um ávöxtun fjármuna KÍ og sjóða, fylgjast með þróun peningamála og móta tillögur um ávöxtunarleiðir. Í ráðinu eiga sæti formaður KÍ, varaformaður KÍ, framkvæmdastjóri KÍ, gjaldkeri KÍ, hagfræðingur KÍ, og formaður stjórnar Vinnudeilusjóðs KÍ. 

Heimilt er að stofna sérsjóði innan KÍ. Skal það gert með reglugerð fyrir hvern sjóð er þing samþykkir. 

Ráðið skal fá til umfjöllunar og endurskoðunar fjárhagsáætlun KÍ þau ár sem ekki er þing. Ráðið skilar tillögum um breytingar á fjárhagsáætlun til stjórnar KÍ fyrir fund hennar í desember. 

  

VI kafli

FASTANEFNDIR 

FRAMBOÐSNEFND 

27. gr. 

Framboðsnefnd skal skipuð sjö fulltrúum , einum frá hverju aðildarfélagi KÍ og jafn mörgum til vara. Skipunartími framboðsnefndar er milli reglulegra þinga. Stjórnir aðildarfélaga KÍ skipa í framboðsnefnd. Á fyrsta fundi skiptir nefndin með sér verkum. 

Hlutverk framboðsnefndar er að auglýsa eftir frambjóðendum til formanns og varaformanns KÍ. Nefndin skal tryggja framboð til formanns og varaformanns sem kosnir eru í atkvæðagreiðslu í samræmi við lög þessi. 

Við vinnu sína skal framboðsnefnd hafa til hliðsjónar jafnréttisstefnu KÍ. 

Stjórn KÍ kallar nefndina saman í síðasta lagi ári fyrir þing. 

Framboðsnefnd starfar eftir sérstökum reglum sem stjórn KÍ setur hverju sinni. Framboðsnefnd skilar lista með nöfnum frambjóðenda í kjöri formanns og varaformanns eigi síðar en 10 vikum fyrir þing til kjörstjórnar KÍ, en þó ekki síðar en 4 vikum fyrir kosningu. 

Nefndinni er skylt að kynna alla frambjóðendur KÍ með hæfilegum fyrirvara fyrir kosningar. 

Allur kostnaður vegna framboðsnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

KJÖRSTJÓRN 

28. gr. 

Stjórn KÍ skipar 3 fulltrúa og 2 til vara í kjörstjórn sem starfa milli þinga úr hópi þeirra fulltrúa sem aðildarfélögin tilnefna. Skipunartími kjörstjórnar er milli reglulegra þinga. 

Hlutverk kjörstjórnar er: 

  1. Að stýra kosningu formanns og varaformanns. 
  2. Að hafa yfirumsjón með fulltrúakjöri fyrir þing KÍ. 
  3. Að undirbúa og stjórna atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun og kjarasamninga, skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum nr. 38/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. 
  4. Að undirbúa og stjórna öðrum atkvæðagreiðslum sem kveður á um í lögum KÍ eða sambandsstjórn felur kjörstjórn sérstaklega. 

Kjörstjórn er heimilt að framlengja atkvæðagreiðslum vegna sérstakra aðstæðna og úrskurðar um úrslit í atkvæðagreiðslu, kjörskrárkærur, vafaatkvæði og önnur ágreiningsatriði sem upp kunna að koma í atkvæðagreiðslum sem hún sér um. 

Allur kostnaður vegna starfa kjörstjórnar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

SKÓLAMÁLARÁР

29. gr. 

Skólamálanefndir aðildarfélaga mynda skólamálaráð ásamt formanni/varafor manni KÍ sem jafnframt er formaður skólamálaráðs. Rökvís, fagfélag nýliða í starfi á jafnframt þrjá fulltrúa í skólamálaráði. Skipunartími skólamálaráðs er milli reglulegra þinga. 

Skólamálaráð heldur a.m.k. einn fund á ári. Formenn skólamálanefnda aðildarfélaga og formaður skólamálaráðs mynda framkvæmdastjórn. Að lágmarki 5 fulltrúar þurfa að sitja fund framkvæmdastjórnar svo fundur teljist lögmætur. . 

Hlutverk skólamálaráðs er: 

  1. Að fjalla um uppeldis- og skólamál á hverjum tíma og álykta um þau til stjórnar KÍ, 
  2. að vera stjórn til ráðuneytis um stefnumörkun á hverjum tíma, 
  3. að fara með mál sem tengjast faglegri menntun félagsfólks, 
  4. að annast tengsl við fagfélög og halda fundi með þeim eftir þörfum, 
  5. að undirbúa í samráði við stjórn KÍ ráðstefnur, fræðslufundi og námskeið um skóla- og menntamál eftir því sem við á hverjum tíma, 
  6. að fjalla um og túlka skólastefnu KÍ og gera tillögur um framkvæmd stefnunnar og markmið.  
  7. að annast tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ felur ráðinu og falla að verksviði þess.  

 Allur kostnaður vegna skólamálaráðs KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

SIÐARÁР

30. gr. 

Siðaráð skal skipað 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími siðaráðs er milli reglulegra þinga. 

Hlutverk siðaráðs er að: 

  • Auka þekkingu um siðfræði og félagsleg álitamál, 
  • endurskoða og útfæra siðareglur reglulega og viðhalda umræðum um þær, 
  • kynna siðareglur og móta sameiginlegan skilning á siðareglum, 
  • vinna með stjórn og ráðum að því að kynna viðhorf stéttarinnar til faglegra álitamála, 
  • vera stjórn KÍ til ráðuneytis um álitamál sem varða siðareglur sambandsins, 
  • annast tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ felur ráðinu og falla að verksviði þess. 

 Allur kostnaður vegna siðaráðs KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

JAFNRÉTTISNEFND 

31. gr. 

Jafnréttisnefnd skal skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími jafnréttisnefndar er milli reglulegra þinga. 

Hlutverk jafnréttisnefndar er að: 

  • Vera stjórn KÍ til ráðuneytis um jafnréttismál og gera tillögur til stjórnar um aðgerðir í jafnréttismálum, 
  • endurskoða og þróa jafnréttisstefnu KÍ reglulega, 
  • vinna umsagnir um frumvörp og önnur erindi þar sem óskað er eftir áliti KÍ um jafnréttismál, 
  • hafa forgöngu um samstarf við jafnréttisnefndir annarra launþegasamtaka, 
  • annast verkefni sem tengjast aðkomu KÍ að viðburðum sem tengjast jafnréttismálum, 
  • annast tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ felur nefndinni og falla að verksviði hennar. 

 Allur kostnaður vegna jafnréttisnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

VINNUUMHVERFISNEFND 

32. gr. 

Vinnuumhverfisnefnd skal skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími vinnuumhverfisnefndar er milli reglulegra þinga. 

Hlutverk vinnuumhverfisnefndar er að: 

  • Endurskoða og þróa stefnu KÍ í vinnuumhverfismálum, 
  • skipuleggja og standa fyrir árlegum þemadegi um vinnuumhverfismál félagsmanna, 
  • skipuleggja ráðgjöf, fræðslu og upplýsingagjöf til félagsmanna um vinnuumhverfismál, sálfélagslega álagsþætti í vinnuumhverfinu og samskipti á vinnustað, 
  • annast tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ felur nefndinni og falla að verksviði hennar. 

 Allur kostnaður vegna Vinnuumhverfisnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

UMHVERFISNEFND 

33. gr. 

Umhverfisnefnd skal skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími umhverfisnefndar er milli reglulegra þinga. Hlutverk umhverfisnefndar er að: 

  • Endurskoða og þróa stefnu KÍ í loftslags- og umhverfismálum, 
  • annast tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ felur nefndinni og falla að verksviði hennar. 

 Allur kostnaður vegna umhverfisnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

FRÆÐSLUNEFND 

34. gr. 

Fræðslunefnd skal skipuð sex fulltrúum , einum fulltrúa frá KÍ, einum fulltrúa frá félögum kennara í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum og einum sameiginlegum fulltrúa stjórnendafélaga KÍ. Skipunartími fræðslunefndar er milli reglulegra þinga. Stjórnir aðildarfélaga KÍ skipa fulltrúa sína í fræðslunefnd. 

Hlutverk fræðslunefndar er að gera tillögur um, skipuleggja og halda fræðslu á vegum KÍ fyrir trúnaðarmenn, forystusveit KÍ og aðildarfélaga, félagsfólk og aðra hópa. Fræðsla er skipulögð í samráði við stjórn, nefndir og ráð KÍ og formenn svæðafélaga/-deilda. 

Allur kostnaður vegna fræðslunefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands. 

 

VII. KAFLI 

ALMENNIR FUNDIR OG ATKVÆÐAGREIÐSLUR 

ALMENNIR FUNDIR 

35. gr. 

Stjórn KÍ getur boðað til almennra félagsfunda. Skylt er að boða til almenns fundar ef 10% virkra félaga eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni. 

 

ATKVÆÐAGREIÐSLA UM KJARASAMNINGA, BOÐUN VERKFALLS O.FL. 

36. gr. 

Um kjarasamninga og boðun verkfalls skal fara fram leynileg, almenn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem samningurinn nær til, samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 eftir því sem við á. Kjörskrá skal miða við gildandi félagatal KÍ. Þeir sem sannanlega greiða félagsgjald til KÍ en eru ekki komnir á félagaskrá eiga rétt á að taka þátt í atkvæðagreiðslu hverju sinni. Stjórn KÍ getur efnt til atkvæðagreiðslu um önnur mikilvæg málefni sem eigi falla sérstaklega undir þing. 

 

VIII. KAFLI 

LAGABREYTINGAR OG GILDISTAKA 

LAGABREYTINGAR 

37. gr. 

Lögum þessum má aðeins breyta á þingi KÍ og þarf breytingin að hljóta 2/3 greiddra atkvæða til þess að öðlast gildi. 

Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn 8 vikum fyrir þing og skulu þær kynntar þingfulltrúum eigi síðar en þremur vikum fyrir þing. 

 

GILDISTAKA 

38. gr. 

Lög þessi öðlast þegar gildi. 

 

Þannig samþykkt á níunda þingi KÍ í apríl 2026.