Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna

Upplýsingar

10. desember 2026

Kl. 10:00 - 15:30

Hilton Nordica

Miðstöð menntunar og þjónustu efnir til málþings sem ber yfirskriftina: Agerðir gegn ofbeldi meðal barna – árangur og næstu skref.

Tilefni málþingsins er að senn lýkur tveggja ára vinnu við innleiðingu 25 aðgerða stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum.

Á málþinginu verða kynntar afurðir vinnunnar, þar á meðal verkfæri og verklag sem nýtast fagfólki í daglegu starfi með börnum. Meðal annars verður fjallað um viðbrögð við krefjandi hegðun barna í grunnskólum og frístundastarfi og kynnt verkfærakista vegna eineltis, kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis (EKKÓ-mála). Jafnframt verður horft til þess hvernig byggja megi áfram á því sem áunnist hefur.

Öll börn eiga rétt á að búa við öryggi og vellíðan. Málþingið er gott tækifæri til að efla sameiginlega þekkingu og styrkja samstarf þeirra sem starfa í þágu barna.

Nánar má lesa um aðgerðahópinn og störf hans á vef Stjórnarráðsins.


Nánar um málþingið

  • Hvenær: Fimmtudaginn 10. desember 2026, kl. 10:00–15:30. Móttaka gesta og morgunkaffi frá kl. 9:30.
  • Hvar: Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
  • Streymi: Málþinginu verður einnig streymt.
  • Kostnaður: Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg.
  • Skráningarfrestur: Til og með 6. desember.

Sætafjöldi er takmarkaður og við hvetjum áhugasöm til að skrá sig sem fyrst.

Nánari dagskrá verður birt síðar. Að málþinginu standa mennta- og barnamálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið.