FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR

14. mar. 2010

Námskeiðsdagur á Vesturlandi

Námskeiðsdagur Faghópsins var haldinn föstudaginn 12. mars á Vesturlandi. Dagurinn var í einu orði stórkostlegur. Allir sem þátt tóku fóru heim mun fróðari, uppfullir af hugmyndum og með gleði í hjarta.
Lesa frétt


13. mar. 2010

Kynning á Special Needs í London

Á heimasíðu sérkennslustjóra í Kópavogi er að finna áhugaverða kynningu á sýningunni og ráðstefnunni Special Needs í London. Mikill áhugi er meðal félagsmanna að fara á sýninguna. Stjórn Faghópsins mun á næstunni taka ákvörðun hvort Faghópurinn muni hugsanlega standa fyrir ferð á sýninguna. Endilega kynnið ykkur málið á Gullkistunni.
Lesa frétt


13. mar. 2010

Upptaka frá málþingi Sjónarhóls

Fimmtudaginn 4. mars sl. stóð Sjónarhóll fyrir málþingi um greiningar og þjónustu á Hótel Nordica. Fundarstjóri var Sölvi Tryggvason fréttamaður og var Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra á meðal þeirra sem héldu ávarp. Við viljum vekja athygli á því að upptaka af málþingi Sjónarhóls er nú komin inn á heimasíðuna, einnig eru þar myndir frá málþinginu.
Lesa frétt


13. mar. 2010

Aðalfundur Máleflis

Aðalfundur Máleflis, nýstofnaðra hagsmunasamtaka í þágu barna og unglinga með tal og málþroskaröskun, verður haldin mánudaginn 22. mars nk. klukkan 20.00-22.00 í Gullhömrum, Grafarholti. Fundarstjóri er Þorsteinn Guðmundsson leikari.
Lesa frétt


8. mar. 2010

Nýjar krækjur á efni um einhverfu

Við vorum að setja inn hér hægra megin á síðuna okkar krækjusafn á efni sem tengist einhverfu. Um er að ræða ýmiskonarefni, bæði íslenskt og erlent.
Lesa frétt


13. mar. 2010: Aðalfundur Máleflis
8. mar. 2010: Nýjar krækjur á efni um einhverfu
8. mar. 2010: Temple Gardin
8. mar. 2010: Eitt og annað nýtt
26. feb. 2010: Nýtt fréttabréf




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli