Lög Félags grunnskólakennara

Núverandi lög FG voru samþykkt á aðalfundi félagsins 2026.

NAFN 
1. gr.

Félagið heitir Félag grunnskólakennara (FG) og á aðild að Kennarasambandi Íslands (KÍ). Félagssvæðið er allt landið. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

 

HLUTVERK 

2. gr.

Hlutverk félagsins er að:

  • Fara með kjaraleg og fagleg málefni félagsfólks sem starfar við kennslu, stjórnun eða ráðgjöf í skólum eða vinnur við stofnanir og fyrirtæki sem tengjast  kennslu- og fræðslumálum, sbr. 3. gr.
  • vera málsvari félagsmanna,
  • gera kjarasamning fyrir félagsfólk,
  • halda fundi og námskeið fyrir trúnaðarmenn,
  • skipa í stjórnir sjóða og nefndir KÍ í samræmi við lög KÍ,
  • sjá um kjör fulltrúa á þing KÍ,
  • efla faglega umræðu meðal félagsfólks,
  • vinna að því að enginn starfi við kennslu í grunnskóla án kennsluréttinda. 

AÐILD 

3. gr.

Rétt til aðildar að FG á félagsfólk KÍ sem starfar við kennslu, stjórnun eða ráðgjöf í grunnskólum eða vinnur við stofnanir og fyrirtæki sem sinna eða tengjast kennslu og fræðslumálum og uppfyllir það skilyrði að KÍ ákvarði launakjör eða semji fyrir viðkomandi skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða að samkomulag sé við viðkomandi launagreiðanda.

Félagsaðild fellur niður ef viðkomandi hættir í því starfi sem veitti aðild eða greiðslur félagsgjalda falla niður.

 

SVÆÐAFÉLÖG

4. gr.

Svæðafélög eru grunneiningar (FG) og starfa á eftirtöldum stöðum og svæðum:

  • Reykjavík
  • Vesturlandi
  • Vestfjörðum
  • Norðurlandi vestra
  • Norðurlandi eystra
  • Austurlandi
  • Suðurlandi
  • Vestmannaeyjum
  • Reykjanesi sunnan Kópavogs
  • Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi

Hlutverk svæðafélaga er:

  • að vera málsvari félagsfólks á sínu svæði og fara með hagsmuni þess í samskiptum við skólana og vinnuveitendur.
  • koma að gerð vinnustaðasamninga í  samráði við stjórn FG.
  • halda trúnaðarmannanámskeið, félagsfundi, haustþing og að annast val fulltrúa á þing KÍ í samráði við stjórn FG.

Hvert svæðafélag er tengiliður smærri eininga sem starfa vilja í sérstökum félögum innan  svæðisins t.d. m.t.t. launagreiðanda.

Svæðafélög setja sér lög í samræmi við lög FG og KÍ.  Stangist lög svæðafélags á við þau, gilda lög FG og KÍ. Svæðafélög skulu senda stjórn FG afrit af lögum sínum til staðfestingar innan fjögurra vikna frá aðalfundi og taka þau gildi þegar stjórn FG hefur samþykkt þau.

Stjórn svæðafélaga skal innan fjögurra vikna frá aðalfundi senda samþykkta skýrslu stjórnar og reikninga svæðafélagsins til stjórnar FG.

Stjórn FG og svæðaformenn ákveða sameiginlega úthlutunarreglur fjár til svæðafélaga á  samráðsfundum, sbr. 12. gr.

Svæðafélögum er heimilt að sameinast enda sé það gert í samráði við stjórn FG. Sameining telst  lögleg ef hún hefur verið samþykkt á löglega boðuðum aðalfundum þeirra félaga sem í hlut eiga.

Félagsfólk í einstökum sveitarfélögum sem hefur sama launagreiðanda getur myndað formlegt  eða óformlegt kennarafélag.

 

AÐALFUNDUR 

5. gr.

Aðalfundur FG skal haldinn fjórða hvert ár innan sex mánaða fyrir eða eftir þing KÍ. Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins, sbr. þó 19. gr.

Á aðalfundi eiga sæti með atkvæðisrétti:

  • Nýkjörin og fráfarandi stjórn,
  • nýkjörin og fráfarandi samninganefnd,
  • nýkjörin og fráfarandi stjórn skólamálanefndar,
  • nýkjörin og fráfarandi kjörnefnd,
  • formenn svæðafélaga,
  • einn fulltrúi fyrir fyrstu 35 félaga hvers svæðafélags en einn fulltrúi fyrir hverja 70 félaga eftir það eða brot úr þeirri tölu sem umfram kann að vera. Svæðafélög velja aðalfundarfulltrúa sína í samræmi við 7. gr. laga þessara og ber að tilkynna nöfn þeirra til stjórnar félagsins minnst átta vikum fyrir aðalfund. Einnig skal tilkynna jafn marga varafulltrúa.

 Kjörtímabil þeirra er milli reglulegra aðalfunda félagsins.

Til aðalfundar skal boðað með almennu fundarboði með a.m.k. 12 vikna fyrirvara. Aðalfundarfulltrúar skulu boðaðir sérstaklega með a.m.k. sex vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á aðalfundi þurfa að berast stjórn félagsins eigi síðar en sex vikum fyrir aðalfund, sbr. þó 20. gr.

Aðalfundargögn skulu send út / birt með minnst tveggja vikna fyrirvara.

 

DAGSKRÁ AÐALFUNDAR 

6. gr.

1.      Skýrsla stjórnar.

2.      Endurskoðaðir ársreikningar félagsins lagðir fram.

3.      Nefndastörf og tillögur, mál og nefndaálit sem borist hafa tekin til umræðu.

4.      Lagabreytingar.

5.      Fjárhagsáætlun.

6.      Kjöri formanns, stjórnar og nefnda lýst.

7.      Kosning félagslegra skoðunarmanna reikninga og í aðrar trúnaðarstöður sem aðalfundur ákveður. 

8.      Önnur mál.

9.      Stjórnarskipti.

 

VAL FULLTRÚA Á AÐALFUND FG OG ÞING KÍ 

7. gr.

Svæðafélög í samráði við stjórn félagsins, sbr. 4. grein eiga eftirtalinna kosta völ við val fulltrúa á aðalfund FG og þing KÍ:

  • Samkvæmt tillögu stjórnar svæðafélags.
  • Í rafrænni atkvæðagreiðslu samkvæmt reglum sem stjórn FG setur.

 

ÁRSFUNDUR 

8. gr.

Þau ár sem ekki er haldinn aðalfundur skal stjórn félagsins boða til ársfundar. Á ársfundi skal stjórn FG leggja fram skýrslu yfir starfsemi félagsins, starfsáætlun og endurskoðaða reikninga fyrir næstliðið ár til kynningar. Á ársfundi skal endurskoða fjárhagsáætlun og taka fyrir málefni er varða innra starf, skólamál, kjaramál og önnur þau mál sem efst eru á baugi að mati stjórnar hverju sinni.

Rétt til setu á ársfundi hafa stjórn og varastjórn, skólamálanefnd, samninganefnd og skoðunarmenn reikninga. Einnig formenn svæðafélaga og fulltrúar FG í nefndum og sjóðum á vegum FG og KÍ.

Stjórn félagsins hefur umboð til að kalla til fleiri fulltrúa ef þurfa þykir. 

 

ALMENNIR FÉLAGSFUNDIR 

9. gr.

Stjórn FG getur boðað til almennra félagsfunda. Skylt er að boða til almenns fundar ef 10% félagsfólks eða fleiri krefjast þess skriflega og fundarefni er tilgreint.

 

STJÓRN 

10. gr.

Stjórn félagsins skipa sjö aðalfulltrúar: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, þrír meðstjórnendur og fimm eru til vara. Kjörtímabil stjórnar er fjögur ár.

Formaður er kosinn sérstaklega í rafrænni atkvæðagreiðslu félagsfólks og skal hún fara fram eigi síðar en 12 vikum fyrir aðalfund. Ef einn er í framboði til formanns telst hann sjálfkjörinn. Aðrir fulltrúar í stjórn og varastjórn eru kosnir saman í sérstakri rafrænni atkvæðagreiðslu félagsfólks og skal hún fara fram eigi síðar en 8 vikum fyrir aðalfund. Þeir sem flest atkvæði hljóta verða aðalfulltrúar og þeir sem næstir koma í atkvæðamagni verða varafulltrúar í þeirri röð sem atkvæðafjöldi þeirra segir til um.

Á fyrsta fundi stjórnar skiptir stjórn með sér verkum. Stjórnin heldur stjórnarfundi svo oft sem þurfa þykir. 

 

HLUTVERK STJÓRNAR 

11. gr.

Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Formaður hefur yfirumsjón með rekstri félagsins og ber ábyrgð á öllum málaflokkum þess, þar með talið fræðslu- og endurmenntunarsjóðum og starfi í skóla- og kjaramálum.

Varaformaður er staðgengill formanns.

Formaður situr í stjórn KÍ og fer með atkvæði félagsins í samræmi við lög KÍ.

 

SAMRÁÐSFUNDUR 

12. gr.

Stjórn félagsins skal boða til fundar með formönnum svæðafélaga a.m.k. tvisvar á ári.

Samráðsfundur er stjórn til ráðuneytis um stjórnun félagsins. Ef þrír eða fleiri svæðaformenn óska  eftir samráðsfundi, ber stjórn að boða til hans innan fjórtán daga.

 

TILNEFNING Í RÁÐ OG NEFNDIR Á VEGUM KÍ OG FG

13. gr.

Á samráðsfundum stjórnar FG og svæðaformanna FG skal velja fulltrúa FG sem stjórn FG skipar að undangengnu vali í eftirfarandi ráð, nefndir og sjóði á vegum FG og KÍ í samræmi við lög KÍ  og vinnureglur þar um:

  • Fræðslu- og kynningarsjóð FG.
  • Vonarsjóð FG og SÍ.
  • Sjúkrasjóð KÍ.
  • Orlofssjóð KÍ.
  • Vinnudeilusjóð KÍ.
  • Fastanefndir á vegum KÍ.
  • Aðrar trúnaðarstöður á vegum FG/KÍ.

 

FUNDARGERÐIR

14. gr.

Ritari stjórnar er ábyrgur fyrir ritun fundargerða og skulu þær bornar upp til samþykktar eigi síðar en á næsta stjórnarfundi.

Fundargerðir eru vistaðar í skjalakerfi KÍ. Dagskrá stjórnarfunda og fundargerðir þeirra, að öðru leyti en því sem skráð er í trúnaðarbók eða háð er trúnaði, skulu birtar á vef KÍ svo fljótt sem auðið er.

 

FJÁRREIÐUR OG BÓKHALD 

15. gr.

Þing KÍ ákvarðar félagsgjald og skiptingu þess milli aðildarfélaga KÍ.

Stjórn FG ber ábyrgð á fjárreiðum og eignum FG og skal sjá til þess að fullnægjandi bókhald, sbr. lög um bókhald nr. 145/1994, sé til staðar.

Gjaldkeri félagsins leggur fram endurskoðaða reikninga á aðalfundi félagsins og ársfundi. 

Reikningsár félagsins er almanaksárið.

 

SAMNINGANEFND

16. gr.

Í rafrænni atkvæðagreiðslu félagsfólks skal kjósa fimm aðalfulltrúa og fimm til vara, sem ásamt stjórn  félagsins, mynda samninganefnd og fer hún með gerð kjarasamninga fyrir félagsfólk, sbr. lög  nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og skv. Lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög  og vinnudeilur eða eftir samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda.

Kosningin skal fara fram  eigi síðar en 8 vikum fyrir aðalfund. Þeir sem flest atkvæði hljóta verða aðalfulltrúar, og þeir sem næstir koma í atkvæðamagni varafulltrúar í þeirri röð sem atkvæðafjöldi þeirra segir til um.

Formaður FG er formaður samninganefndar, að öðru leyti skiptir samninganefndin með sér verkum.

Hlutverk samninganefndar er að:

  • ganga frá markmiðum og áherslum í samningagerð og endanlegri kröfugerð,
  • annast gerð kjarasamninga,
  • taka ákvörðun um hvort efna skuli til atkvæðagreiðslu um verkfall,
  • taka ákvörðun um hvort undirrita eigi kjarasamning með fyrirvara um samþykki félagsfólks og um hvort fresta skuli verkfalli.

 Samninganefnd hefur samráð við svæðaformenn og fagfélög félagsfólks við undirbúning samningsmarkmiða og kallar á fulltrúa þeirra til ráðgjafar við samningsgerðina.

Formaður félagsins í umboði KÍ ber ábyrgð á undirritun kjarasamninga fyrir félagsfólk og gerð og undirritun viðræðuáætlana vegna endurnýjunar þeirra.

Formaður og/eða varaformaður KÍ starfa með samninganefndinni eftir nánari ákvörðun stjórnar félagsins hverju sinni.


SKÓLAMÁLANEFND 

17. gr.

Á vegum félagsins starfar skólamálanefnd sem sinnir faglegum málefnum félagsfólks. Stjórn FG skipar formann skólamálanefndar úr sínum  röðum.

Í  rafrænni atkvæðagreiðslu félagsfólks skal kjósa sex aðalfulltrúa og sex til vara. Kosningin skal fara  fram eigi síðar en 8 vikum fyrir aðalfund. Þeir sem flest atkvæði hljóta verða aðalfulltrúar og þeir sem næstir koma í atkvæðamagni varafulltrúar í þeirri röð sem atkvæðafjöldi þeirra segir til um. Skólamálanefndin skiptir með sér verkum.

Hlutverk skólamálanefndar er að:

  • Fjalla um fagleg málefni og skólamál í samráði við stjórn FG og skólamálaráð KÍ,
  • vinna að eflingu kennaramenntunar og starfsþróunar félagsfólks,
  • annast tengsl við kennslu- og faggreinafélög.

 
KJÖRNEFND 

18. gr.

Í rafrænni atkvæðagreiðslu félagsfólks skal kjósa þrjá aðalfulltrúa og þrjá til vara.

Kosningin skal fara fram eigi síðar en 8 vikum fyrir aðalfund. Þeir sem flest atkvæði hljóta verða aðalfulltrúar og þeir sem næstir koma í atkvæðamagni varafulltrúar í þeirri röð sem  atkvæðafjöldi þeirra segir til um.

Hlutverk kjörnefndar er:

  • Að auglýsa eftir frambjóðendum til trúnaðarstarfa fyrir félagið
  • tryggja framboð til formanns og til annarra trúnaðarstarfa sem kjósa á til
  • kynna frambjóðendur og annast rafrænar kosningar

 Áður en nefndin kynnir frambjóðendur skal liggja fyrir samþykki viðkomandi einstaklinga.

Kjörnefnd setur sér nánari starfsreglur í samráði við stjórn félagsins sem þarf að samþykkja þær.

 

ATKVÆÐAGREIÐSLA UM KJARASAMNINGA, BOÐUN VERKFALLS O.FL.

19. gr.

Um kjarasamninga og boðun verkfalls skal fara fram leynileg, almenn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem samningurinn nær til, skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eftir því sem við á.
Kjörskrá skal miða við gildandi félagatal FG. Þeir sem sannanlega greiða félagsgjald til FG en eru ekki komnir á félagaskrá eiga rétt á að taka þátt í atkvæðagreiðslu hverju sinni.

Stjórn félagsins getur efnt til atkvæðagreiðslu um önnur mikilvæg málefni sem eigi falla sérstaklega undir aðalfund.

 

LAGABREYTINGAR

20. gr.

Lögum þessum má breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytingarnar verið kynntar í  fundarboði. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn átta vikum fyrir aðalfund og  skulu þær kynntar aðalfundarfulltrúum eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund. Til þess að  breyting nái fram að ganga verður hún að hljóta samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða.

Samþykktar lagabreytingar skulu sendar stjórn KÍ til staðfestingar innan fjögurra vikna frá aðalfundi. Breytingarnar öðlast ekki gildi fyrr en stjórn KÍ hefur staðfest þær. Stangist ákvæði laga FG á við lög KÍ skulu lög KÍ gilda.

 

GILDISTAKA

21. gr.

Lög þessi öðlast gildi þegar stjórn Kennarasambands Íslands hefur staðfest þau.


Þannig samþykkt á 9. aðalfundi Félags grunnskólakennara 16. október 2026. Staðfest af stjórn Kennarasambands Íslands 20. október 2026


Lög FG í prentútgáfu