Lögin voru síðast uppfærð á aðalfundi FS í mai 2026 – og síðan staðfest af stjórn KÍ 16. júní 2026

1. gr.
Félagið heitir Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) og á aðild að Kennarasambandi Íslands (KÍ).
Félagssvæðið er allt landið. Heimili þess og varnarþing eru í Reykjavík.
2. gr.
Hlutverk félagsins er að:
3. gr.
Rétt til aðildar að FS eiga öll sem starfa sem aðstoðarskólameistarar, konrektorar, staðgenglar skólameistara/rektors, áfangastjórar og aðrir sem eru í a.m.k. hálfri stöðu sem stjórnendur í framhaldsskólum og FS semur fyrir, skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og skv. lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða eftir samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda.
Félagsaðild kemur fram í ráðningarsamningi og/eða með skilum félagsgjalda til KÍ.
4. gr.
Félagsaðild fellur niður ef félagi hættir í því starfi sem veitti honum aðild eða greiðslur félagsgjalda falla niður.
Félagsfólk getur ekki sagt sig úr FS/Kennarasambandi Íslands eftir að ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin og þar til henni hefur verið formlega aflýst.
Einstaklingur sem segir sig úr félaginu á ekki tilkall til eigna þess.
5. gr.
Félagið er starfrækt í einni deild.
6. gr.
Aðalfundur FS skal haldinn fjórða hvert ár í tengslum við þing Kennarasambands Íslands. Ekki skulu líða meira en sex mánuðir milli þings KÍ og aðalfundar. Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins, sbr. þó 26. gr. þessara laga.
Á aðalfundi á allt félagsfólk sæti með atkvæðisrétt.
Til aðalfundar skal boðað skriflega með tölvupósti með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á aðalfundi, þ.m.t. tillögur að lagabreytingum, þurfa að berast stjórn félagsins eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund. Aðalfundargögn skulu send út/birt með minnst tveggja vikna fyrirvara. Fundargerð aðalfundar skal birta á vef KÍ svo fljótt sem auðið er. Jafnframt skal stjórn senda félagsfólki upplýsingar um helstu viðfangsefni félagsins milli aðalfunda.
7. gr.
Á reglulegum aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
8. gr.
Stjórn félagsins er heimilt að boða til aukaaðalfunda um tiltekin efni. Boða skal til aukaaðalfundar með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara þar sem tilefni fundarins kemur fram. Fundargögn skulu send út með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Aukaaðalfundur fjallar um tiltekin afmörkuð mál og hafa ákvarðanir aukaaðalfunda um slík málefni sama gildi og ákvarðanir reglulegra aðalfunda.
Skylt er að boða til aukaaðalfundar, svo fljótt sem auðið er, ef þriðjungur félagsfólks eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.
9. gr.
Þau ár sem ekki er haldinn aðalfundur skal stjórn félagsins boða til ársfundar. Á ársfundi er m.a. fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar félagsins og Vísindasjóðs FF/FS eru lagðir fram til kynningar. Ársfund skal boða með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara.
Rétt til setu á ársfundi hefur allt félagsfólk.
10. gr.
Stjórn félagsins getur boðað til almennra félagsfunda. Skylt er að boða tafarlaust til almenns félagsfundar ef 10% félagsfólks eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.
11. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm einstaklingar og tveir til vara, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Kjörtímabil stjórnar er fjögur ár. Formaður og stjórn félagsins skulu kosin í allsherjaratkvæðagreiðslum meðal félagsfólks og skulu kosningarnar vera rafrænar og standa yfir í a.m.k. 72 klst. og vera lokið fyrir aðalfund félagsins.
Framboð skulu berast framboðsnefnd eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Ef aðeins einn býður sig fram til formanns skoðast viðkomandi sjálfkjörinn. Ef fleiri bjóða sig ekki fram til stjórnarsetu en fjöldi embætta kveður á um, teljast þeir sjálfkjörnir. Formaður er kosinn sérstaklega en annað stjórnarfólk saman og skipta hin síðarnefndu með sér verkum.
Stjórnin heldur stjórnarfundi svo oft sem þurfa þykir. Einfaldan meirihluta þarf til að ákvarðanir stjórnarfunda séu lögmætar. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund enda hafi fundurinn verið boðaður í tæka tíð.
Formaður skal vera í 100% starfi sem stjórnandi.
12. gr.
Formaður félagsins situr í stjórn KÍ en varaformaður er staðgengill hans í forföllum.
13. gr.
Formaður félagsins hefur yfirumsjón með rekstri félagsins og ber ábyrgð á öllum málaflokkum, þar með talið fræðslu- og endurmenntunarsjóðum og starfi í skóla- og kjaramálum. Formaður fer með umboð KÍ gagnvart undirbúningi, gerð og undirritun viðræðuáætlana, kjarasamninga og um önnur mál er tengjast samningasviðinu.
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Stjórn ber ábyrgð á starfsemi félagsins og hefur eftirlit með því að lögum þess, samþykktum og samningum sé framfylgt og er í fyrirsvari fyrir það út á við.
Stjórn er jafnframt samninganefnd og skólamálanefnd félagsins.
14. gr.
Stjórn félagsins skal boða til fundar með þeim fulltrúum sem kjörnir eru til trúnaðarstarfa á vegum félagsins a.m.k. einu sinni á ári.
15. gr.
Stjórn félagsins annast framkvæmd vals fulltrúa FS á þing KÍ.
16. gr.
Stjórn FS skipar ásamt stjórnum stjórnendafélaga innan KÍ einn fulltrúa og einn til vara í eftirfarandi nefndir og stjórnir:
17. gr.
Ritari félagsins heldur gerðabækur og ritar fundargerðir sem skulu samþykktar á stjórnarfundi og undirritaðar af formanni og ritara. Dagskrá stjórnarfunda og fundargerð, að undanskildu því sem skráð er í trúnaðarbók, skal birt á vef KÍ svo fljótt sem auðið er.
18. gr.
Þing KÍ ákveður félagsgjald og skiptingu þess. Stjórn félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum og eignum þess og skal sjá til þess að fullnægjandi bókhald skv. lögum um bókhald nr. 145/1994 sé til staðar.
Gjaldkeri félagsins hefur umsjón með fjárreiðum þess og bókfærslu og leggur fram endurskoðaða reikninga á aðalfundi.
19. gr.
Stjórn félagsins er jafnframt samninganefnd og formaður félagsins er formaður samninganefndar. Samninganefnd félagsins fer með gerð kjarasamninga fyrir félagsfólk sitt, sbr. lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Samninganefndin skiptir með sér verkum og setur sér starfsreglur sem færðar eru til bókar á stjórnarfundi.
Hlutverk samninganefnda er m.a. að:
20. gr.
Stjórn er jafnframt skólamálanefnd félagsins. Stjórn FS tilnefnir fulltrúa félagsins í skólamálaráð.
Hlutverk skólamálanefnda er m.a. að:
21. gr.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa einn fulltrúa í stjórn Vísindasjóðs FF/FS og annan til vara.
Vísindasjóður FF/FS er sameiginlegur sjóður félagsfólks Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum og er tilgangur hans að stuðla að starfsþróun þess.
Fjárframlög til sjóðsins eru kjarasamningsbundin iðgjöld vinnuveitenda af launum félagsfólks.
Sjóðsstjórn er skipuð fulltrúum FF og FS sem skipta með sér verkum. Hlutverk sjóðsstjórnar er að hafa umsjón með fjármunum sjóðsins.
Sjóðsstjórn setur reglur (verklagsreglur) fyrir starfsemi sjóðsins ásamt því að setja sjóðnum úthlutunarreglur, endurskoða þær og afgreiða styrki til félagsfólks skv. þeim úthlutunarreglum sem gilda hverju sinni. Reglur (verklags- og úthlutunarreglur) sjóðsins skal bera undir stjórnir FF og FS til samþykktar.
22. gr.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa tvo félaga í framboðsnefnd og einn til vara. Hlutverk nefndarinnar er að leggja fram tillögur um frambjóðendur til kjörs formanns, meðstjórnenda, skoðunarmanna reikninga og til annarra trúnaðarstarfa sem aðalfundur ákveður. Áður en nefndin leggur fram tillögur um frambjóðendur skal hafa samráð við viðkomandi einstaklinga. Framboðsnefnd skal hafa samráð við sitjandi stjórn.
23. gr.
Kjörstjórn félagsins skal skipuð tveimur félögum og einum til vara, kjörnum á aðalfundi. Hún stýrir stjórnarkjöri og öðrum kosningum á aðalfundum auk annarra kosninga sem ekki heyra undir kjörstjórn Kennarasambands Íslands. Aðalfundur setur reglur um störf kjörstjórnar og framkvæmd atkvæðagreiðslu.
24. gr.
Á vegum FS skal starfrækja viðburðaráð. Ráðið hefur það hlutverk að styðja við faglega þróun og efla félagslíf meðal félagsfólks með skipulagningu og framkvæmd viðburða, bæði innanlands og erlendis.
Ráðið er skipað þremur úr hópi félagsfólks og tveimur til vara.
Viðburðaráðið starfar í umboði stjórnar og í nánu samstarfi við hana.
25. gr.
Stjórn FS gegnir jafnframt hlutverki trúnaðarmanna fyrir félagsfólk.
26. gr.
Um kjarasamninga og boðun verkfalls skal fara fram leynileg, almenn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks FS og FF sem samningurinn nær til, samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eftir því sem við á. Kjörskrá skal miða við félagatal FS og FF í þeim mánuði sem atkvæðagreiðsla fer fram. Þeir sem sannanlega greiða félagsgjald en eru ekki komnir á félagaskrá eiga rétt á að taka þátt í atkvæðagreiðslu hverju sinni.
Stjórn félagsins getur efnt til allsherjaratkvæðagreiðslu um önnur mikilvæg málefni sem eigi falla sérstaklega undir aðalfund.
27. gr.
Lögum þessum má einungis breyta á aðalfundi félagsins enda hafi tillögur um breytingar verið kynntar í formlegu fundarboði. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn þremur vikum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar félagsfólki eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Tillögur sem fram koma á aðalfundi og eru um breytingar á auglýstum lagabreytingum skulu vera skriflegar. Til þess að breyting nái fram að ganga verður hún að hljóta samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Breytingar á lögunum koma fyrst til framkvæmda er stjórn Kennarasambandsins hefur staðfest þær.
28. gr.
Ef leysa á félagið upp skal bera tillögu þess efnis upp á aðalfundi félagsins, eða aukaaðalfundi og skal auglýsa það með sama fyrirvara og um lagabreytingu sé að ræða. Eignum félagsins skal ráðstafa á sama fundi. Til þess að slík tillaga teljist samþykkt þurfa minnst 2/3 fundarfólks að greiða henni atkvæði sitt.
29. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar stjórn KÍ hefur staðfest þau.
Ákvæði til bráðabirgða
Þrátt fyrir ákvæði 6. gr. laga þessara skal fyrsta kjör stjórnar og formanns samkvæmt breyttum lögum þessum fara fram í tengslum við ársfund FS árið 2027.
Núverandi stjórn situr þar til ný stjórn og formaður hafa verið kjörin og taka við störfum við lok þess aðalfundar. Kjörtímabil fyrstu stjórnar samkvæmt ákvæði þessu skal, eftir því sem þörf krefur, stytt eða lengt þannig að næsta reglubundna stjórnarkjör falli að aðalfundi félagsins sem haldinn er í tengslum við þing KÍ. Að því loknu skal kjörtímabil stjórnar og formanns vera í samræmi við 6. gr. laga þessara.
Þegar kjöri stjórnar og formanns samkvæmt ákvæði þessu hefur verið lýst fellur ákvæðið úr lögum þessum.
Þannig samþykkt á aðalfundi Félags stjórnenda í framhaldsskólum 5.5.2026.