Fundað með þingmönnum Vestnorræna ráðsins í dag

Mennta- og skólamál landanna þriggja í útnorðri; Íslands, Færeyja og Grænlands, var rædd á fundi með þingmönnum Vestnorræna ráðsins í dag.
Mennta- og skólamál landanna þriggja í útnorðri; Íslands, Færeyja og Grænlands, var rædd á fundi með þingmönnum Vestnorræna ráðsins í dag.
Leiðtogar UTNORD gengu á fund Vestnorræna ráðsins í Smiðju, húsakynnum Alþingis, í dag. UTNORD er bandalag Kennarasambands Íslands og kennarasambanda í Færeyjum og á Grænlandi.
Fyrir hönd kennarasambandanna sóttu fundinn Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Elna Heilman Thomsen, formaður IMAK á Grænlandi, Jacob Eli Olsen, formaður Føroya Lærarafelag, og Sanna á Løgmansbø frá Føroya Pedagogfelag. Fyrir hönd Vestnorræna ráðsins sátu fundinn Jørgen Niclasen, formaður færeysku sendinefndarinnar, og Pipaluk Lynge, formaður grænlensku sendinefndarinnar. Jón Gnarr, formaður ráðsins, gat ekki verið viðstaddur.
UTNORD-samstarfið var kynnt fyrir ráðinu, sagt frá tilurð þess og sameiginlegum hagsmunamálum sambandanna er kemur að skóla- og menntamálum. Rætt var um mikilvægi þess að þjóðirnar þrjár; Ísland, Færeyjar og Grænlandi, vinni saman enda margt um líkt þegar kemur að stöðu kennara í löndunum og þróu skólakerfsins.
Magnús Þór var ánægður að loknum fundi. „Fundurinn gekk vel og við áttum gott samtal við þingmennina. Við höfum að markmiði að stilla saman strengi landanna þriggja í útnorðri þegar kemur að menntamálum, svo sem að deila reynslu af kennslu í fámennum samfélögum og sýna samstöðu í hagsmunamálum kennarastéttarinnar. Með því að standa saman höfum við sterkari rödd og getum frekar lyft til dæmis áhyggjum af þjóðtungunum í löndunum þremur, stöðu skólakerfsins og hvernig við getum náð betri árangri," sagði Magnús.
Magnús Þór sagði jafnframt að eftir þennan fyrsta fund með Vestnorræna ráðinu þá stæðu vonir til þess að það verði árlegt verkefni að setjast niður með þingmönnum ráðsins og ræða skólamálin frá ýmsum sjónarhornum.
Vestnorræna ráðið kemur saman til ársfundar á Akureyri á morgun.
Tengdar fréttir
Samstaða kennara yfir landamæri afar mikilvæg – 3. júlí 2026
UTNORD lýsir yfir stuðningi við grænlenska þjóð – 22. janúar 2026
Þjóðirnar þrjár í útnorðri stilla saman strengi – 1. september 2025

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, var ánægður með fundinn og sagði vonir standa til samstarfs með Vestnorræna ráðinu.