Samningur Félags leikskólakennara gildir til 31. mars 2028.

Kennarasamband Íslands skrifaði undir innanhússtillögu ríkissáttasemjara 25. febrúar 2025. Með tillögunni, sem er ígildi kjarasamnings, framlengist gildandi kjarasamningur Félags leikskólakennara til 31. mars 2028, með breytingum.
Yfirlit yfir þau starfsheiti sem eru við lýði í leikskólum landsins og eiga við félaga í Félagi leikskólakennara.