Fræðslunámskeið fyrir trúnaðarmenn

Fræðslunefnd heldur námskeið fyrir trúnaðarmenn á haustin.

Námskeið haustið 2026

Fræðslunefnd KÍ stendur fyrir árlegu fræðslunámskeiði fyrir trúnaðarmenn um störf þeirra, réttindi og skyldur og er markmiðið að efla trúnaðarmenn í störfum sínum og þekkingu á réttinda- og hagsmunamálum félagsmanna.

Námskeiðið beinist sérstaklega að nýlegum og nýjum trúnaðarmönnum.

Með nýlegum trúnaðarmönnum er átt við þá sem hafa verið trúnaðarmenn undanfarin tvö ár og með nýjum trúnaðarmönnum er átt við þá sem eru trúnaðarmenn frá upphafi þessa skólaárs.

Námskeiðið er að sjálfsögðu opið fyrir aðra trúnaðarmenn ef þeir telja sig hafa þörf fyrir þessa fræðslu.

Starfs­lok

Fræðsluefni um starfslok sem kynnt var á árlegu fræðslunámskeiði fyrir trúnaðarmenn haustið 2026.

Sjá nánar