Reglur um fjarfundi

Reglur um framkvæmd fjarfunda á vegum stjórna, ráða og nefnda á vegum Kennarasambands Íslands.

Eftirfarandi reglur um framkvæmd fjarfunda á vegum stjórna, ráða og nefnda á vegum Kennarasambands Íslands voru samþykktar af stjórn 17. janúar 2023.

Almennt

Reglur þessar gilda um framkvæmd fjarfunda á vegum Kennarasambands Íslands. Markmið reglnanna er að stuðla að samræmingu og skilvirkni þegar kemur að framkvæmd fjarfunda. Reglurnar gilda um notkun fjarfundarbúnaðar á öllum fundum á vegum sambandsins, hvort sem um er að ræða fundi stjórna, nefnda eða ráða. Fulltrúum er almennt heimilt að nota fjarfundabúnað á fundum sínum.

Á fjarfundum jafnt sem öðrum fundum eiga allar almennar aðferðir fundarstjórnunar við og sömu fundarsköp eiga við um þátttakendur sem sitja fund í fjarfundi. Í raun er það enn mikilvægara þegar um þátttöku á fjarfundi er að ræða þar sem samskipti og skynjun þátttakenda er takmörkuð.


Undirbúningur

Almenn regla er að ekki er boðað til stjórnar-, nefndar- og/eða ráðsfunda á vegum KÍ sem fjarfundi, tekið skal fram í fundarboði ef möguleiki er að taka þátt í fundi sem fjarfund.

Fundarmaður sem óskar eftir því að taka þátt í fundi í gegnum fjarfundarbúnað skal tilkynna það fundarstjóra sem boðaði til fundarins með sólarhrings fyrirvara.

Opna skal fundinn í síðasta lagi 15 mínútum fyrir fund til að kanna hvort tæknileg atriði séu í lagi og þeir fundarmenn sem hyggjast sitja fundinn í fjarfundarbúnaði skulu skrá sig inn á fundinn a.m.k. 10 mínútum áður en fundur hefst.

Fundarstjóri ber ábyrgð á því að fjarfundarbúnaður sé tiltækur og opinn miðað við framangreindar reglur fyrir þá fundarmenn sem að taka þátt í fjarfundinum.


Fundartími

Meðan á fundi stendur skal fundarmaður í fjarfundi:

  • sýna fram á að hann sé einn við fundarstörf.
  • almennt nota heyrnartól og hljóðnema.
  • vera sýnilegur öðrum fundarmönnum á meðan fundi stendur.
  • gæta að góðu netsambandi, lýsingu, hljóði og öðru sem eykur gæði fundarins.
  • skal að jafnaði hafa slökkt á hljóðnema á meðan aðrir fundarmenn hafa orðið.


Framkvæmd fjarfundar

Tryggja skal jafnan aðgang og möguleika fundarmanna til þátttöku á fundi og aðgang að gögnum. Fundarstjóri stýrir umræðum á fundi og óska fundarmenn, sem sitja fundinn á fjarfundi, eftir því að fá orðið í gegnum viðkomandi fjarfundakerfi. Óski fundarmaður eftir því að leggja fram bókun skal hann senda ritara fundarins bókunina með rafrænum hætti.

Ef gögn eru lögð fram á fundi vegna mála sem eru á dagskrá fundarins, skal tryggja að fundarmenn, sem sitja fundinn í fjarfundi, geti kynnt sér gögnin. Einnig skal tryggja að fundarmenn eigi jafna möguleika á að fylgjast með kynningum á mynd- eða talnaefni, ef um slíkt ræðir.

Ef trúnaðarmál er til umræðu á fundinum skal fundarstjóri óska eftir staðfestingu fundarmanna á því að enginn óviðkomandi heyri til fundarins, t.a.m. með því að færa myndavélina til svo fundaraðstaða fundarmanns sjáist vel.

Leynilegar atkvæðagreiðslur geta ekki farið fram ef einhver eða allir fundarmenn taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað nema þær fari fram með öruggum rafrænum hætti.

Ef fundarmaður á fjarfundi missir samband við fund skal gert fundarhlé á meðan unnið er að endurnýjun sambands. Ef fundarhlé hefur staðið yfir í meira en 10 mínútur vegna þessa er heimilt að fundur hefjist að nýju ef fundurinn er að öðru leyti ályktunarhæfur.

 

Samþykkt af stjórn 17. janúar 2023.

Hér má nálgast reglurnar í heild.