Níu svæðadeildir eru starfræktar innan Félags leikskólakennara og skiptast þær eftir landsvæðum

Svæðadeildir Félags leikskólakennara eru níu talsins og skiptast eftir landssvæðum. Nánar er fjallað um svæðadeildir í lögum FL. Kveðið er á um samstarf og styrki Kennarasambandsins til svæðadeilda í lögum KÍ.
Hlutverk svæðadeilda er að vera málsvari félagsmanna hver á sínu svæði. Svæðadeildir halda deildarfundi með sínu fólki og sjá til þess að fram fari trúnaðarmannanámskeið í samráði við stjórn Félag leikskólakennara.

Félag leikskólakennara fagnaði 75 ára afmæli á haustdögum 2025.