Stundakennarar

Laun og kjaratengd atriði stundakennara í grunnskólum

Laun stundakennara í grunnskólum

TímabilTaxti
1. feb. 2025 til 31. mars 2025
5.877 krónur

1. apríl 2025 til 31. mars 2026
6.083 krónur

1. apríl 2026 til 31. mars 2027
6.296 krónur

1. apríl 2027 til 31. mars 2028
6.516 krónur

Mat á viðbótarmenntun

Hafi stundakennarar viðbótarmenntun skv. gr 1.3.2, sem finna má í kjarasamningi SNS og FG sem í gildi var til 30. nóvember 2017, hækka ofangreind laun um 2,2% við hvern áunninn launaflokk.

Orlof

Orlof reiknast á ofangreindan launataxta. Orlofsprósenta vegna stundakennslu er 13,04% (frá 1. september 2020).

Lífeyrissjóður

Minnt er á að skv. 1.gr. laga nr. 129/1997 með síðari breytingum um starfsemi lífeyrissjóða er öllum launamönnum og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi er rétt og skylt að tryggja sér lífeyrisréttindi með aðild að lífeyrissjóði frá og með 16 ára til 70 ára aldurs. Því skal greiða iðgjöld í lífeyrissjóð af stundakennarataxta skv. ofangreindu til 70 ára aldurs.