Viðbótarlaunaflokkar

Stjórnunarreynsla getur gefið viðbótarlaunaflokka.

Getty Images Vbvjy Iqrbe Unsplash

Skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar fá eftirfarandi viðbótarlaunaflokka vegna stjórnunarreynslu í grunn-, leik-, tónlistar-, framhalds og/eða háskóla. (Stjórnun, grein 1.37 í kjarasamningi)

  • Tveir launaflokkar eftir 5 ára stjórnunarreynslu
  • Tveir launaflokkur eftir 10 ára stjórnunarreynslu
  • Tveir launaflokkar eftir 15 ára stjórnunarreynslu
  • Einn launaflokkur eftir 20 ára stjórnunarreynslu

Grein þessi veitir að hámarki 7 viðbótarlaunaflokka. Kennsluferil allt að 10 árum skal meta með sama hætti og um stjórnunarreynslu væri að ræða.

Sérdeild

1 launaflokkur
Formleg sérdeild eða mótttökudeild fyrir nýbúa í skóla hækkar röðun skólastjóra og aðstoðarskólastjóra um 1 launaflokk.

Útibú

  • 1 launaflokkur
    Umsjón með útibúi/starfsstöð í öðru byggðarlagi / hverfi hækkar um launaflokk.

Lengd viðvera

  • 2 launaflokkar
    Að 30 nemendum í lengdri viðveru hækkar röðun stjórnenda um 2 launaflokka, skv. ákvörðun skólastjóra.
  • 3 launaflokkar
    30-74 nemendur í lengdri viðveru hækkar röðun stjórnenda um 3 launaflokka, skv. ákvörðun skólastjóra.
  • 4 launaflokkar
    Fleiri en 75 nemendur í lengdri viðveru hækkar röðun stjórnenda um 4 launaflokka, skv. ákvörðun skólastjóra.

Samrekstur skóla

  • 3 launaflokkar
    Laun skólastjóra hækka um 3 launaflokka vegna samreksturs skóla og miðast röðun við 30 leikskólabörn eða færri.
  • 4 launaflokkar
    Laun skólastjóra hækka um 4 launaflokka vegna samreksturs skóla og miðast röðun við 31 leikskólabarn og fleiri.
  • 2 launaflokkar
    Samrekstur grunnskóla og tónlistarskóla gefur 2 launaflokka.

Samkomulag um laun í samreknum skólum

Leiðbeiningar fyrir rekstraraðila