Lög SÍ

Lög Skólastjórafélags Íslands Lögin voru endurskoðuð og samþykkt á aðalfundi SÍ þann 11. október 2025.

1. gr. NAFN

Félagið heitir Skólastjórafélag Íslands og á aðild að Kennarasambandi Íslands. Félagssvæðið er allt landið. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. HLUTVERK

    1. Að fara með málefni félagsmanna í Skólastjórafélagi Íslands.
    2. Að vinna að bættum kjörum og gæta hagsmuna félagsmanna.
    3. Að stuðla að umbótum í fræðslu- og uppeldismálum þjóðarinnar.
    4. Að vinna að aukinni menntun og starfsþróun félagsmanna.
    5. Að stuðla að kynningu milli félagsmanna og efla faglega umræðu meðal þeirra.
    6. Að gæta hagsmuna skólanna í hvívetna ásamt því að kynna sem best starf þeirra.
    7. Að annast tengsl við sambærileg félög erlendis og stuðla að samskiptum við aðrar þjóðir.

3. gr. AÐILD AÐ FÉLAGINU EIGA

Skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar grunnskóla. Þá geta aðrir þeir sem starfa innan fræðslustarfsemi grunnskóla og kjarasamningur Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands tekur til, sótt um aðild að félaginu.

4. gr. AÐALFUNDUR

Aðalfund félagsins skal halda fjórða hvert ár allt að sex mánuðum fyrir þing Kennarasambands Íslands. Til fundarins skal boðað með tveggja mánaða fyrirvara. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagsmenn. - Tveimur mánuðum fyrir aðalfund skipar stjórn Skólastjórafélags Íslands þriggja manna nefndanefnd sem gerir tillögur um skipan starfsnefnda aðalfundar og skulu starfsnefndir skipaðar a.m.k. þremur fulltrúum.

Stjórn félagsins er heimilt að boða til aukaaðalfundar um tiltekin efni. Boða skal til aukaaðalfundar með a.m.k. 4 vikna fyrirvara þar sem tilefni fundarins kemur fram. Fundargögn skulu send út með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara. Aukaaðalfundur fjallar um tiltekin afmörkuð mál og hafa ákvarðanir aukaaðalfunda um slík málefni sama gildi og ákvarðanir reglulegra aðalfunda.

Skylt er að boða til aukaaðalfundar, svo fljótt sem auðið er, ef þriðjungur félagsmanna eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.

5. gr. DAGSKRÁ 

    1. Fundarsetning og skipan embættismanna.
    2. Kosnar starfsnefndir: Menntamálanefnd, Kjaranefnd og
    3. Skýrsla stjórnar.
    4. Reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
    5. Umræður um skýrslu stjórnar og
    6. Lagðar fram tillögur stjórnar, nefnda og
    7. Nefndir
    8. Kynning formanns, fulltrúa í stjórn og nefndir komandi kjörtímabil.
      1. Kjöri fulltrúa í samninganefnd lýst.
      2. Kjöri fulltrúa í skólamálanefnd lýst.
      3. Kjöri fulltrúa í kjararáð lýst.
      4. Kjöri formanns lýst.
      5. Kjöri nýrrar stjórnar lýst.
    9. Önnur mál.

6. gr. KOSNINGAR

  1. Eigi síðar en 6 mánuðum fyrir aðalfund skal stjórn kalla eftir framboðum til formanns og stjórnar auk fulltrúa í nefndir og ráð.
  2. Formaður, stjórn, nefndir og ráð skulu kosin í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Skulu kosningarnar vera rafrænar og standa yfir í a.m.k. 72 klst. og vera lokið fyrir aðalfund félagsins. Ef einn býður sig fram til embættis skoðast viðkomandi sjálfkjörinn.
  3. Stjórn félagsins tilnefnir fulltrúa á þing Kennarasambands Íslands og skal kjör þeirra fara fram á aðalfundi.

7. gr. Stjórn

Stjórn félagsins skipa fimm menn og þrír til vara. Kjörtímabil stjórnar er fjögur ár. Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnin heldur stjórnarfundi svo oft sem þurfa þykir. Heimilt er stjórn að ráða starfsfólk til að annast störf fyrir félagið. Stjórnin hefur tvær fastanefndir sér til aðstoðar:

  1. Kjararáð sem er baknefnd fyrir samninganefnd félagsins og gerir a. tillögur um launa- og kjaramál félagsmanna.
  2. Skólamálanefnd sinnir faglegum málefnum fyrir félagsmenn. Formaður nefndarinnar skal vera varaformaður félagsins sem jafnframt á sæti í framkvæmdastjórn skólamálaráðs Kennarasambands Íslands.

Hlutverk nefndarinnar er:

      1. Að fjalla um fagleg málefni og skólamál í samráði við stjórn félagsins og skólamálaráð Kennarasambands Íslands.
      2. Að vinna að eflingu kennaramenntunar og starfsþróunar félagsmanna.
      3. Að annast tengsl við fagfélög og sambærilegar nefndir annarra uppeldisstétta.
      4. Að undirbúa með stjórn fundi, námskeið og námstefnur félagsmanna.

8. gr. SKIPULAG

Félagið er deildaskipt og er formaður hverrar deildar trúnaðarmaður á sínu svæði. Stjórn félagsins skal boða formenn svæðafélaga til fundar a.m.k. einu sinni á ári. Stjórn félagsins er heimilt að greiða rekstrarstyrk til einstakra deilda félagsins.

9. gr. ÁRSFUNDIR

Þau ár, sem ekki er haldinn aðalfundur, skal boða til ársfundar. Á ársfundi er m.a. fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram til kynningar.

10. gr. ALMENNIR FÉLAGSFUNDIR

Stjórn Skólastjórafélags Íslands getur boðað til almennra félagsfunda. Skylt er að boða til almenns fundar ef 10% eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.

11. gr. FUNDARGERÐIR

Ritaðar eru fundargerðir stjórnarfunda sem skulu samþykktar á næsta stjórnarfundi. Fundagerðir stjórnar og nefnda skulu birtar félagsmönnum á aðgengilegan hátt.

12. gr. FJÁRREIÐUR OG BÓKHALD

Þing Kennarasambands Íslands ákveður skiptingu félagsgjalda. Formaður skólastjórafélagsins hefur umsjón með fjárreiðum þess og bókfærslu í samráði við framkvæmdastjóra og bókara Kennarasambands Íslands. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fram á ársfundum og eða aðalfundi félagsins.

13. gr. KOSNING TIL STJÓRNAR KENNARASAMBANDS ÍSLANDS

Formaður félagsins situr í stjórn Kennarasambands Íslands en varaformaður er staðgengill hans í forföllum.

14. gr. SAMNINGANEFND

Samninganefnd ásamt stjórn - mynda samninganefnd félagsins og fer hún með gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn sína, sbr. lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.

Samninganefndin skiptir með sér verkum. Hlutverk samninganefndar er:

    1. Að ganga frá markmiðum og áherslum í samningagerð og endanlegri kröfugerð.
    2. Að annast gerð
    3. Að taka ákvörðun hvort undirrita eigi kjarasamning með fyrirvara um samþykki félagsmanna og hvort fresta skuli verkfalli.

Formaður Skólastjórafélags Íslands í umboði Kennarasambands Íslands ber ábyrgð á undirritun kjarasamninga fyrir sína félagsmenn og gerð og undirritun viðræðuáætlana vegna endurnýjunar þeirra sbr. 9. gr. í lögum Kennarasambands Íslands.

Formaður og varaformaður Kennarasambands Íslands starfa með samninganefndinni eftir nánari ákvörðun stjórnar félagsins hverju sinni.

15. gr. ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA UM KJARASAMNINGA O.FL.

Um kjarasamninga Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands skal fara fram leynileg, rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal þeirra félagsmanna Skólastjórafélags Íslands sem falla beint undir viðkomandi kjarasamning. Kjörskrá skal miða við félagatal í þeim mánuði sem atkvæðagreiðsla fer fram. Stjórn félagsins getur efnt til allsherjaratkvæðagreiðslu um önnur mikilvæg málefni sem eigi falla sérstaklega undir aðalfund.

16. gr. LAGABREYTINGAR

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytingarnar verið kynntar í fundarboði. Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn 6 vikum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar aðalfundarfulltrúum eigi síðar en þrem vikum fyrir aðalfund. Til þess að breyting nái fram að ganga verður hún að hljóta samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða. Breytingar á lögunum koma fyrst til framkvæmda er stjórn Kennarasambands Íslands hefur staðfest þær.

17. gr. GILDISTAKA

Lög þessi öðlast gildi þegar stjórn Kennarasambands Íslands hefur staðfest þau.

 

Samþykkt á aðalfundi Skólastjórafélags Íslands 1l. október 2025

Stjórn Kennarasambands Íslands staðfesti lögin á stjórnarfundi 14. október 2025.

Lög Skóla­stjóra­fé­lags Ís­lands

Sækja prentúgáfu