Svæðafélög SÍ

Svæðadeildir Skólastjórafélags Íslands eru átta talsins og skiptast eftir landshlutum

Svæðafélög SÍ eru átta talsins

Hvert svæðafélag skipar sér stjórn og eru þær tilgreindar hér að neðan. Svæðafélög geta sótt um styrki til KÍ með að markmiði að efla félagsstarf og/eða samstarf félaga. Styrkjum er úthlutað fjórum sinnum á ári. Nánar má lesa um úthlutunarreglur neðst á þessari síðu. 

Heiti svæðafélaga og stjórnarfólk

Reglur KÍ um úthutun styrkja til svæðafélaga og félagsdeilda aðildarfélaga

Reglurnar eru byggðar á 14. gr. laga Kennarasambands Íslands 2014

  1. Stjórnir svæðafélaga/félagsdeilda aðildarfélaga KÍ geta sótt um styrki til stjórnar KÍ. Umsókninni skulu fylgja samþykktir reikningar svæðafélags/deildar fyrir síðasta starfsár og undirrituð yfirlýsing formanns og gjaldkera um fjárhagslega stöðu félagsins/deildarinnar við undirritun umsóknar.
  2. Styrkumsókn skal fylgja umsögn stjórnar viðeigandi aðildarfélags KÍ. Hægt er að senda umsókn til formanns KÍ sem kemur umsókn til umsagnar aðildarfélags KÍ.
  3. Styrkir skulu einungis veittir til að styrkja félagsstarf og/eða samstarf svæðafélaga/deilda.
  4. Við afgreiðslu umsókna skal tekið mið af fjárhagsstöðu félagsins/deildarinnar og hver þörfin er fyrir umframfjármagn. Þetta getur verið m.a. vegna sérstaks verkefnis eða sérstakra aðstæðna svo sem mikils ferðakostnaðar.
  5. Stjórn KÍ úthlutar fjórum sinnum á ári styrkjum til svæðafélaga/deilda. Formaður KÍ leggur fram tillögu að úthlutun fyrir stjórn KÍ til samþykktar, að höfðu samráði við gjaldkera KÍ.
  6. Óheimilt er að veita fé til að styrkja einstaklinga.
  7. Óheimilt er að veita fé til að greiða kostnað af endurmenntun.
  8. Óheimilt er að veita fé til að styrkja einstaklinga eða hópa til þátttöku í fundum, námskeiðum eða ráðstefnum erlendis.

Reglur samþykktar í stjórn KÍ 22. janúar 2016.