Fræðslustefna

Samþykkt á 9. Þingi Kennarasambandsins, sem fór fram í apríl 2026. Fræðslustefnan gildir til 2030.

Inngangur

Fræðslunefnd Kennarasambands Íslands (KÍ) starfar skv. lögum KÍ og samþykktum þings KÍ. Fræðslustefna KÍ er jafnan samþykkt á þingi KÍ sem haldið er á fjögurra ára fresti. Stefnan byggir á lögum KÍ um fræðslunefnd.

Fræðslustefna KÍ er leiðarljós allrar sameiginlegrar fræðslu meðal félagsfólks.

Meginmarkmið er að efla tengsl og virkni félagsfólks, auka þátttöku í félagsstarfi og efla stéttarvitund.

Markhópar fræðslu KÍ:

  1. Trúnaðarmenn aðildarfélaga KÍ
  2. Forystufólk KÍi
  3. Almennt félagsfólk
  4. Nýliðar í kennslu í samstarfi við Rökvís
  5. Kennaranemar


Framkvæmd stefnu

Fræðslustarfsemi á vegum KÍ skal einkum vera eftirfarandi:

  1. Árleg trúnaðarmannafræðsla fyrir nýja og nýlega trúnaðarmenn aðildarfélaga KÍ. Fræðslan beinist að hlutverki þeirra, réttindum og skyldum og helstu hagsmunamálum stéttarinnar ásamt öðru sem efst er á baugi hverju sinni. Aðildarfélög KÍ sjá um fræðslu um kjarasamninga hvers félags og innra starf fyrir sína trúnaðarmenn. Áfram verður byggt upp efni á miðlum KÍ fyrir trúnaðarmenn og hugað að fjölbreyttri fræðslu. Fræðslan er staðbundin og í streymi.
  2. Forystufræðsla er haldin í upphafi hvers kjörtímabils. Hún er hugsuð fyrir þá sem kjörnir eru til trúnaðarstarfa á vegum KÍ og aðildarfélaga til að styðja fólk í störfum sínum.
  3. Fræðslu/umræðufundir fyrir félagsfólk um helstu kjara- og réttindamál, skóla- og menntamál og aðra málaflokka sem efstir eru á baugi hverju sinni.
  4. FRÆ er fræðsla fyrir almennt félagsfólk KÍ til að efla það í starfi og lífi.
  5. Fræðsla fyrir kennaranema um starf KÍ, réttindi og skyldur og siðareglur kennara.


Við skipulagningu fræðslu skal þess gætt að tekið sé tillit til mismunandi aðstæðna félagsfólks eins og kostur er. Þar er meðal annars átt við mismunandi vinnutíma og fjarlægðir til að sækja fundi. Staðviðburðum er streymt, staðfundir eru einnig fjarfundir og upptökur af FRÆ – fyrirlestrum má finna á vef KÍ í ákveðinn tíma eftir frumflutning.

Ráðstefnur, málþing, fundir og námskeið skulu, eins og kostur er, vera í streymi svo jafna megi tækifæri alls félagsfólks til þátttöku. Fræðslunefnd skal í samráði við framkvæmdastjóra og ritstjóra KÍ greina þarfir félagsfólks, trúnaðarmanna, nýliða í kennslu og kennaranema og þeirra sem sitja í stjórnum, nefndum og ráðum fyrir KÍ fyrir útgáfu stafræns upplýsingaefnis á miðlum KÍ.

Fræðslu skal auglýsa með góðum fyrirvara.


Árangursmat

Eftir fræðslu skal lagt mat á árangur fræðslunnar m.a. með spurningalistum um gagnsemi, með því að fylgjast með fjölda þátttakenda í streymi og með því að fylgjast með áhorfstölum fræðslu myndbanda.


Fræðslunefnd

Hlutverk nefndarinnar er skilgreint í 34. gr. laga KÍ en þar segir:

Fræðslunefnd skal skipuð sex manns, einum fulltrúa frá KÍ, einum fulltrúa frá félögum kennara í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum og einum sameiginlegum fulltrúa stjórnendafélaga KÍ. Skipunartími fræðslunefndar er milli reglulegra þinga. Stjórnir aðildarfélaga KÍ skipa fulltrúa sína í fræðslunefnd.

Hlutverk fræðslunefndar er að gera tillögur um, skipuleggja og halda fræðslu á vegum KÍ fyrir trúnaðarmenn, forystusveit KÍ og aðildarfélaga, félagsmenn og aðra hópa. Fræðsla er skipulögð í samráði við stjórn, nefndir og ráð KÍ og formenn svæðafélaga/-deilda.

Allur kostnaður vegna fræðslunefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.


Ábyrgð

Stjórn KÍ fer með ábyrgð á framkvæmd stefnunnar og getur falið nefndinni að undirbúa, framkvæma og hafa yfirumsjón með markmiðum hennar.


Gildissvið

Fræðslustefna KÍ nær til alls félagsfólks KÍ.


Gildistími

Fræðslustefnu KÍ skal endurskoða á fjögurra ára fresti. Tillaga samþykkt samhljóða á níunda þingi KÍ 2026