Jafnréttisstefna Kennarasambands Íslands, fyrir tímabilið 2026 til 2030, var samþkkt á níunda þingi sambandsins í apríl 2026.
.png&w=3840&q=100)
Jafnréttisstefna Kennarasambands Íslands (KÍ) er samþykkt á 9. þingi sambandsins. Stefnan er reist á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna ásamt öðrum lögum sem leggja bann við hvers konar mismununi
Stefna þessi tekur mið af heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun og á einnig rætur í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og mannréttindayfirlýsingum.
Jafnrétti á vinnustað og í félagsstarfi er grundvallarréttur alls félagsfólks KÍ ekki síst þeirra sem starfa í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum KÍ.
Jafnréttisnefnd KÍ starfar samkvæmt lögum KÍ og samþykktum þings KÍ. Hlutverk nefndarinnar er skilgreint í 31. gr. laga KÍ en þar segir: Jafnréttisnefnd skal skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími jafnréttisnefndar er milli reglulegra þinga.
Jafnrétti er haft að leiðarljósi í allri starfsemi KÍ og er beini (II) eða óbein (III) mismunun ekki liðin.
Horft er til hvers kyns mismununar á grundvelli kyns, kynþáttar, kynhneigðar, kynvitundar (IV), kyneinkenna (V) kyntjáningar (VI), aldurs, fötlunar, skertrar starfsgetu (VII), heilsufars, þjóðernis, litarháttar, uppruna, trúarbragða, skoðana, menningar eða stöðu að öðru leyti, sem lítilsvirðir eða misbýður einstaklingi eða hópi sem fyrir henni verður.
KÍ leggur áherslu á inngildingu og viðurkennir fjölbreytileika fólks. Markmiðið er að skapa aðstæður þar sem öll geta tekið virkan þátt.
Skólar og félagsfólk KÍ skulu vinna markvisst að inngildingu, virða fjölbreytileika og vinna gegn hvers kyns mismunun.
Félagsfólk KÍ ber sameiginlega ábyrgð á að viðhafa ekki hatursorðræðu (IX), meiðandi orðræðu eða fordóma, og skapa ekki fjandsamlegt andrúmsloft gagnvart einstaklingi eða hópi.
Virða skal líkamlegt og andlegt rými hvers og eins og rétt fólks til að setja sín eigin mörk.
-888340f5.jpg&w=3840&q=100)
Félagsfólk KÍ ber sameiginlega ábyrgð á að viðhafa ekki hatursorðræðu, meiðandi orðræðu eða fordóma, og skapa ekki fjandsamlegt andrúmsloft gagnvart einstaklingi eða hópi.
Félagsfólk KÍ skal njóta virðingar og hafa jöfn tækifæri til framgangs í starfi. Hvorki skal mismuna umsækjendum né starfsfólki á nokkurn hátt um vinnuaðstæður og vinnuskilyrði (X). Jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið við stöðuveitingar.
Allt félagsfólk KÍ skal hafa jafna möguleika á að taka þátt í félagsstörfum sambandsins.
Leitast skal við að fylgja lögum 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna við skipan í nefndir, ráð og stjórnir.
Við ákvörðun launa og fríðinda skal ávallt gæta jafnréttis. Öllum skulu greidd jöfn laun (XI) og öll skulu njóta sömu kjara (XII) fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf og njóta jafnra hvers konar frekari þóknana, beinna og óbeinna, hvort heldur er með hlunnindum eða öðrum hætti.
Félagsfólki KÍ innan sama aðildarfélags skal ekki mismuna í möguleikum til starfsþróunar. Jafna skal aðgengi félagsfólks KÍ óháð staðsetningu að fræðslu, ráðstefnum og fundum á vegum KÍ/aðildarfélaga með streymi, upptökum og fjölbreyttu staðarvali.
Mikilvægt er að allt félagsfólk KÍ hafi tækifæri til að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu.

Einelti, hvers kyns áreitni og ofbeldi líðst ekki meðal félagsfólks KÍ. Félagsfólk KÍ skal koma fram af virðingu.
Menntun gegnir lykilhlutverki í að tryggja jöfnuð og jöfn tækifæri.
Félagsfólk KÍ skal gæta mannréttinda, jafnréttis, réttlætis og kynjasamþættingar (XIII) við alla stefnumótun og áætlanagerð í skólastarfi.
Jafnréttisnefnd KÍ leggur áherslu á að kynja- og jafnréttisfræðsla verði hluti af námi á öllum skólastigum og að háskólar sem útskrifa kennara, geri kynja- og jafnréttisfræðslu að skyldufagi þannig að allir kennarar öðlist skilning, þekkingu og næmi á jafnrétti og geti þannig stuðlað að markvissri jafnréttismenntun (XIV).
Stjórnendur allra skóla bera ábyrgð á að framfylgja stefnu, áætlun og lögum í jafnréttismálum (XV).
Einelti, hvers kyns áreitni og ofbeldi líðst ekki meðal félagsfólks KÍ. Félagsfólk KÍ skal koma fram af virðingu.
Hvatt er til að menntastofnanir framfylgi EKKO-stefnu og forvarnaráætlun sbr. Reglugerð 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Stjórn KÍ fer með ábyrgð á framkvæmd stefnunnar en getur falið Jafnréttisnefnd KÍ að undirbúa, framkvæma eða hafa yfirumsjón með völdum markmiðum hennar.
Gildissvið jafnréttisstefnu KÍ nær til alls félagsfólks KÍ.
Jafnréttisstefnu KÍ skal endurskoða á fjögurra ára fresti. Skv. lögum KÍ ber Jafnréttisnefnd ábyrgð á því.
Samþykkt samhljóða á 9. þingi KÍ 2026