Hver eru viðmið Rannsóknasjóðs og hvaða kröfur þarf að uppfylla?

Opið er fyrir umsóknir og skilafrestur er til hádegis mánudaginn 8. febrúar 2027. Ráðgert er að tilkynna um úhlutun styrkja fimmtudaginn 25. febrúar 2027.
Gott er að hafa í huga almenn markmið sjóðsins sem eru að veita styrki til rannsókna sem beinast að eftirfarandi:
Rannsókn er kerfisbundin athugun og skráning á niðurstöðum gerð í þeim tilgangi að leita svara við fyrirfram skilgreindri rannsóknarspurningu. Fjölbreyttum aðferðum má beita við gagnasöfnun. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel markmið sjóðsins og viðmið um mat á gæðum umsóknar.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel markmið og reglur sjóðsins sem finna má hér fyrir neðan sem og viðmið um mat á gæðum umsóknar.
Við minnum á að hægt er að senda fyrirspurn á Mínum síðum ef spurningar vakna.
Til að sækja um styrk í Rannsóknasjóð KÍ þarf að fylla út umsóknareyðublað.
Umsækjandi, eða ábyrgðarmaður umsóknar, ef umsækjendur eru fleiri en einn, sækir í kjölfarið um styrk í Rannsóknasjóð KÍ á Mínum síðum. Umsóknareyðublaði og ferilskrá/m umsækjanda/enda skal hlaðið upp með umsókn á Mínum síðum, ásamt öðrum fylgigögnum, ef við á.
Umsækjendur eru hvattir til að vanda til verka við gerð umsókna og leitast við að hafa þær skýrar og greinagóðar. Hér er hægt að nálgast matsblað stjórnar sjóðsins til að hafa til hliðsjónar við umsóknarferlið.
„Samstarfsverkefni tveggja eða fleiri félagsmanna njóta alla jafna forgangs.“