Vísindasjóður FF og FS veitir styrki til faglegrar og fagtengdrar endurmenntunar félagsmanna sinna, bæði innanlands og erlendis.

Félagsmenn í FF og FS öðlast rétt til úthlutunar úr A deild eftir 3ja mánaða iðgjaldagreiðslur. Í A deild miðast styrkupphæð við starfshlutfall og lengd starfstíma. Réttindi falla niður þegar iðgjöld hætta að berast sjóðnum.
Félagsmenn í FF og FS öðlast rétt til úthlutunar úr B deild eftir 6 mánaða iðgjaldagreiðslur. Í B deild miðast styrkupphæð við starfshlutfall og lengd starfstíma. Réttindi falla niður þegar iðgjöld hætta að berast sjóðnum.
Félagsmaður sem fer í launalaust leyfi og nám getur viðhaldið réttindum sínum, haldi hann félagsréttindum sínum í FF eða FS og hluti iðgjalda renni til sjóðsins. Styrkur er ekki greiddur fyrr en félagsmaður er kominn aftur til starfa og er orðinn fullgildur sjóðfélagi á ný og sjóðnum hefur sannanlega borist greiðsla iðgjalda meðan á launalausu leyfi stóð.
Félagsmaður í fæðingarorlofi getur viðhaldið réttindum sínum enda haldi hann félagsréttindum sínum í FF eða FS og hluti iðgjalda renni til sjóðsins. Styrkur er ekki greiddur fyrr en félagsmaður er kominn aftur til starfa og orðinn fullgildur sjóðfélagi á ný og sjóðnum hefur sannanlega borist greiðsla iðgjalda meðan á fæðingarorlofi stóð.
Útgjöld sem eru lögð til grundvallar umsókn í A deild skulu hafa fallið til á síðustu 12 mánuðum, miðað við umsóknardag. Athugið að það er einungis hægt að sækja um í A deild sjóðsins frá 1. september til 30. nóvember ár hvert.
Umsóknir í B-deild má senda inn allt árið og þeir eru afgreiddir eins fljótt og auðið er. Reikningar mega ekki vera eldri en 12 mánaða gamlir. Eingöngu eru veittir styrkir út á reikninga, kvittanir eða önnur gögn sem stíluð er á umsækjandann. Styrkir eru ekki greiddir í áföngum.