Vísindasjóður FL og FSL

Markmið Vísindasjóðs FL og FSL er að tryggja fjárhagslegan grundvöll símenntunar og endurmenntunar fyrir félagsfólk.

Markmið Vísindasjóðs Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla er að tryggja fjárhagslegan grundvöll símenntunar og endurmenntunar fyrir félagsmenn í tengslum við störf þeirra, þannig að komið sé til móts við þarfir og óskir þeirra fyrir endur- og viðbótarmenntun eftir því sem kostur er.

Félagsmenn í FL og FSL sem hafa tekið laun eftir kjarasamningum félagana, í 3 mánuði, eiga aðild að Vísindasjóði FL og FSL. Þjónustufulltrúar sjóða sjá um almenna afgreiðslu umsókna í sjóðinn. Vinsamlegast sendið póst á sjodir@ki.is.

Hvaða styrkir eru í boði?