Sjóðurinn styrkir faglega starfsþróun og andlega/líkamlega heilsueflingu.

Markmið sjóðsins er annars vegar að auka tækifæri félagsmanna FG og SÍ til faglegrar starfsþróunar og hins vegar að félagsmenn geti sótt um styrk til andlegrar og/eða líkamlegrar sjálfseflingar. Með faglegri starfsþróun er átt við að félagsmenn viðhaldi og auki sérfræðiþekkingu sína á sviði náms og kennslu.
Stjórn Vonarsjóðs FG og SÍ kemur að jafnaði saman annan hvern mánuð, í lok febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember og umsóknarfrestur rennur út 15. þess mánaðar sem fundur er haldinn.
Kvittanir mega vera tólf (12) mánaða gamlar. Hægt er að sækja um styrk sex (6) mánuði fram í tímann og allt að tólf (12) mánuði aftur í tímann. Vottorð vegna lokinna ECTS eininga mega vera tólf (12) mánaða gamlar frá því að námsáfanga lýkur.
Athugið að allar umsóknir sem innihalda skólaheimsóknir þurfa að fara fyrir fund stjórnar. Einnig er vafamálum vísað til stjórnar.