Lög FT voru síðast uppfærð og samþykkt á aðalfundi félagsins 2026

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum hefur verið starfrækt frá árinu 1982. Félagsmenn eru um 480 talsins og starfa í um áttatíu tónlistarskólum um land allt.
Í þriðju grein laga FT segir um aðild að félaginu:
„Allir, sem starfa við kennslu eða stjórnun í tónlistarskólum eða stofnunum sem sinna eða tengjast tónlistarkennslu og eru félagsmenn í Kennarasambandi Íslands og Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum semur fyrir, skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, eða samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda, eru félagar í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.“