Samstarfsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga er formlegur vettvangur samskipta á gildistíma kjarasamnings.

Á fundum samstarfsnefndar FT og SNS er fjallað um framkvæmd og túlkun kjarasamnings, úrskurðað í ágreiningsmálum og unnið úr bókunum með kjarasamningi milli kjaraviðræðna. Starf samstarfsnefndar liggur að jafnaði niðri meðan kjaraviðræður standa yfir.