FT hefur á að skipa þremur svæðadeildum sem vinna að félagsstarfi, hafa samráð milli svæða og efla tónlistarfræðslu.

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum skiptist í þrjár svæðadeildir, ein svæðadeild fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Suðurnes. Önnur deild nær yfir Norður- og Austurland og sú þriðja er svæðadeild fyrir Vesturland og Vestfirði.
Markmið svæðadeilda er að efla svæðisbundið félagsstarf og samráð milli svæða, auk þess að styrkja tónlistarfræðslu á landinu. Stjórnir svæðadeilda geta sótt um fjárstyrk til Kennarasambands Íslands.