Hvernig virkar orlofsréttur? Hvernig eru frídagar taldir?

Sumarorlofstímabil er frá 15. maí til 30. september hjá öllum félagsmönnum KÍ fyrir utan félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla, hjá þeim er miðað við 1. maí til 15. september.
Ávinnslutímabil orlofs er frá 1. maí til 30. apríl. Á þessu tímabili ávinnur starfsmaður sér rétt til orlofs og orlofslauna á næsta orlofsári (sumarorlofstímabil).
Veikindi í sumarorlofi skulu sönnuð með læknisvottorði svo fljótt sem auðið er. Starfsmaður getur eingöngu átt inni daga vegna eigin veikinda í sumarorlofi en ekki vegna barna sinna. Þá getur starfsmaður ekki átt daga inni vegna veikinda í jóla- og páskaleyfi.
Nokkur munur er, eftir kjarasamningum KÍ, hvernig talningu veikindadaga í orlofi er háttað:
Starfsmaður getur ekki talist að hálfu veikur og hálfu frískur í orlofi. Fari starfsmaður sem verið hefur í svokölluðum hlutaveikindum í orlof telst það að fullu til orlofstöku nema að læknir votti að starfsmaður geti ekki notið orlofs en þá telst fríið að fullu til veikinda.
Orlofsrétturinn er tvíþættur. Annars vegar er um að ræða rétt til orlofs (frídaga) og hins vegar rétt til launa í fríinu (orlofslauna). Starfsmaður á alltaf rétt á lágmarksorlofi (30 daga) en það er háð ávinnslu fjölda orlofsdaga hvað hann fær í orlofslaun. Hafi starfsmaður einungis unnið í 6 mánuði á hann rétt á launum a.m.k í 12 daga í orlofinu en hann getur hins vegar verið samtals 30 daga í orlofi, þar af 15 daga launalaust.
Orlofsfé vegna yfirvinnu eða vaktavinnu er lagt inn jafnóðum á sérstakan orlofsreikning starfsmanns í banka og er laust til útborgunar frá miðjum maí ár hvert. Orlofsfé er einnig greitt af launum tímakaupsfólks sem og öllum mánaðarlaunum þegar um skemmri ráðningar er að ræða.
Orlofsfé af yfirvinnu eða vaktavinnu er 13,04%.