Veikindaréttur

Hvernig er best að bera sig að ef veikindi koma upp? Hvað réttindi gilda ef veikindi eru langvinn?

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér reglur um veikindarétt. Hvernig ber að haga hlutum verði félagsmaður veikur í sumarfríinu? Hversu lengi má félagsmaður vera fjarverandi vegna veikra barna? Hvaða réttindi gilda ef félagsmaður glímir við langvinn veikindi? Þessum spurningum og fleiri er svarað hér að neðan.

Hvernig eru veikindadagar taldir?

Í veikindum eru allir dagar taldir (almanaksdagar) en ekki einungis virkir dagar. Horft er til fjölda veikindadaga síðustu 12 mánuði og sá fjöldi dreginn frá rétti starfsmanns.

Ávinnsla veikindaréttar miðar við starfsaldur hjá núverandi launagreiðanda auk fyrri starfsaldurs hjá stofnunum ríkis, sveitarfélaga og/eða sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé.

Lengd veikindaréttar miðast við starfsaldur

StarfsaldurFjöldi veikindadaga
0 til 3 mánuðir í starfi
14
Næstu 3 mánuðir í starfi
35
Eftir 6 mánuði í starfi
119
Eftir 1 ár í starfi
133
Eftir 7 ár í starfi
175
Eftir 12 ára 
273
Eftir 18 ára starf
360
  • Við mat á ávinnslurétti starfsmanns er auk þjónustualdurs hjá viðkomandi launagreiðanda einnig talinn þjónustualdur hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé. Veikindaréttur flyst þannig með starfsmanni milli sveitarfélaga og/eða ríkisstofnana.
  • Á fyrstu 3 mánuðum samfelldrar ráðningar er veikindaréttur þó ekki metinn nema viðkomandi hafi samfelldan starfsaldur hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta af almannafé þeim launagreiðanda í 12 mánuði eða meira. 
  • Dæmi: Starfsmaður ræður sig til ríkisstofnunar A. Áður starfaði hann í sex mánuði hjá ríkisstofnun B og þar áður átta mánuði hjá Reykjavíkurborg. Samfelldur þjónustualdur hans er því fjórtán mánuðir og veikindaréttur hans 133 dagar. Hafi hins vegar orðið rof á starfstíma hans, sem nemur meira en mánuði, hjá fyrr­nefndum launagreiðendum á síðustu tólf mánuðum er veikindaréttur hans 14 dagar á fyrstu þremur mánuðum samfelldrar ráðningar hjá ríkisstofnun A. Eftir það miðast veikindaréttur hans við samanlagðan þjónustualdur.

Önnur mikilvæg atriði er varða veikindarétt