Ráðningar og auglýsingaskylda

Hvað þarf að koma fram í ráðningarsamningi? Hvaða reglur gilda um auglýsingar?

Hvað segja lögin?

Samkvæmt lögum nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er óheimilt að ráða aðra en þá sem uppfylla ákvæði þessara laga til kennslu við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á vegum opinberra aðila eða hliðstæðra skóla. Starfsheiti og starfsréttindi þessara stétta eru lögvernduð.

Kennarar eru almennt ráðnir til starfa ótímabundið með gagnkvæmum uppsagnarfresti. Hjá grunnskólakennurum og skólastjórnendum teljast fyrstu fjórir mánuðir í starfi til reynslutíma en fyrstu þrír mánuðir í starfi hjá öðrum kennurum (í leikskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum). 

Við sérstakar aðstæður er heimilt að ráða starfsmann til starfa tímabundið. Tímabundin ráðning skal þó aldrei vara samfellt lengur en í 2 ár nema verklok séu fyrirfram ákveðin. Ef stofnun eða fyrirtæki vill ráða starfsmann lengur skal það gert með ótímabundnum ráðningarsamningi.

Sæki enginn kennari, með fullgild réttindi, um auglýst starf er heimilt að lausráða í starfið til bráðabirgða að hámarki til eins árs í senn.