Atriði sem gott er að hafa í huga þegar sótt er um styrk

Umsóknum og fylgigögnum er skilað á Mínum síðum. Ef fylgigögn eru send með venjulegum pósti þarf að merkja þau með umsóknarnúmeri. Frá og með 1. janúar 2017 mega kvittanir vera tólf (12) mánaða gamlar. Þó er heimilt að sækja um styrk fyrir námskeið sex (6) mánuði fram í tímann og tólf (12) mánuði aftur í tímann.
Stjórn afgreiðir umsóknir á fundum sínum sem eru að jafnaði í byrjun febrúar, apríl, júní, september, október og desember. Umsóknir þurfa að berast fyrir 25. dag mánaðar á undan fundi.
Umsóknir um styrk vegna eftirtalinna námskeiða þurfa að jafnaði ekki að fara fyrir fund: Handavinnunámskeið, myndlistarnámskeið, námskeið og ráðstefnur sem tengjast kennslu í leikskólum, tónlistarnámskeið, tungumálanámskeið, tölvunámskeið.