Faghópur um skapandi leikskólastarf

Faghópur um skapandi leikskólastarf er öflugur félagsskapur áhugafólks um skapandi starf í leikskólum

Tilgangur félagsins er að

  • auka skilning á skapandi starfi fyrir börn
  • standa vörð um hið skapandi barn
  • stuðla að auknum tengslum við einstaklinga, skóla  og stofnanir er tengjast menningu og listum
  • beita sér fyrir því að grunnmenntun og starfsþróunarmöguleikar kennara  i skapandi starfi verði efld.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að skapa skemmtilegan og frjóan hóp fagfólks sem hefur áhuga, metnað og vilja til að styðja við skapandi leikskólastarf. Að kennarar og áhugafólk um menntun barna hafi aðgang að starfsþróun á sviði skapandi starfs.  Standa fyrir fundum, viðburðum, málþingum,ráðstefnum og jafningjafræðslu.

Faghópurinn

Viltu skrá þig í hóp­inn?

Hér er hægt að skrá sig í Faghópinn. Við sendum þér svar til baka um félagsaðild eins fljótt og auðið er.

Nánar

Fréttir